mobile navigation trigger mobile search trigger
11.05.2021

Kennari við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

Við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar vantar bæði umsjónarkennara á yngsta- og miðstigi. Einnig vantar  kennara í almenna kennslu og kennslu í smíði og hönnun á sömu skólastigum.

Leitað er að kennurum sem er reiðubúnir að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks sem innir af hendi skemmtileg og krefjandi störf með nemendum skólans.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi
  • Starfsreynsla er æskileg.
  • Samskipta- og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi.
  • Skipulagshæfileikar.
  • Reiðubúin/n að takast á við nýjungar.

Við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar starfar samhentur hópur starfsfólks sem leggur metnað í góð samskipti og því gerum við kröfu til starfsmanna að þeir búi að ríkulegri samskiptahæfni.

Frekari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu hans; www.fask.is. Nánari upplýsingar um störfin veitir Eygló Aðalsteinsdóttir í síma 475-9025 eða á netfangið eya@skolar.fjardabyggd.is

Umsóknarfrestur er til 25. maí n.k.

Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Starfslýsing grunnskólakennara.pdf

Starfslýsing umsjónarkennara.pdf

Umsóknir og umsóknarfrestur       

Staðan er laus frá 1. ágúst 2021. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ. 

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér

Frétta og viðburðayfirlit