Námskeiðið er opið öllum konum sem eru félagar í Starfsgreinasambandi Íslands eða í starfsmannafélögum sveitarfélaganna, þeim að kostnaðarlausu. Skráning skal berast í síðasta lagi fimmtudaginn 28. febrúar á netfangið kristinheba@akak.is eða í síma 461 4006.
Athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður.
Námskeiðið verður haldið laugardaginn 2. mars kl. 11:00-17:00 í sal AFLs Starfsgreinafélags, Miðvangi 2-4 Egilsstöðum.
Dagskrá
- Að bjóða kynjakerfinu birginn
- Staða verkalýðsbaráttunnar í dag
- Uppbygging verkalýðsfélaganna
- Leiðtogaþjálfun
- Að hafa áhrif og koma sínu á framfæri
- Að starfa í verkalýðshreyfingunni