mobile navigation trigger mobile search trigger
06.08.2019

Kvenkyns starfsmaður við Íþróttamiðstöðina á Eskifirði

Laus er til umsóknar 100% staða starfsmanns við Íþróttamiðstöð Eskifjarðar. Vegna eðli starfsins er auglýst eftir kvenkyns starfsmanni. Um er að ræða framtíðarstarf. Best væri að starfsmaðurinn gæti hafið störf sem fyrst.

Í starfinu felst meðal annars:
• Eftirlit og gæsla með gestum íþróttahús og líkamsræktarstöðvar
• Eftirlit og gæsla með sund- og baðgestum
  Aðstoð við skólabörn, fyrir og eftir sund- og leikfimikennslu 
• Afgreiðsla og önnur þjónusta við börn og aðra gesti
• Þrif

Hæfniskröfur:
Reynsla af þjónustustörfum er æskileg
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Frumkvæði og skipulagshæfni
Hæfni í mannlegum samskiptum

Laun eru samkvæmt samningum launanefndar sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Frekari upplýsingar um starfið gefur Jóhann Ragnar Benediktsson, forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar Eskifjarðar í síma 862 0363 og í gegnum netfangið johannrb@fjardabyggd.is 

Umsóknarfrestur er til og með 22. ágúst 2019.

Starfslýsing.

Sótt er um starfið rafrænt á ráðningarvef sveitarfélagsins.

Frétta og viðburðayfirlit