mobile navigation trigger mobile search trigger
18.02.2020

Leikskólakennarar við Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla

Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli auglýsir eftir leikskólakennurum eða starfsfólki með sambærilega menntun í tímabundnar stöður með möguleika á áframhaldandi ráðningu.  Um er ræða ca. 60% starf við deildina á Breiðdalsvík og ca. 60% starf við deildina á Stöðvarfirði. Umsækjendur þurfa að getað hafið störf sem fyrst.

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun áskilin
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Ábyrgð og stundvísi
  • Góð íslenskukunnátta æskileg

Starfslýsing leikskólakennara

Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um. Umsóknarfrestur er til 2. mars 2020.

Nánari upplýsingar gefur Jónas E. Ólafsson skólastjóri í síma 475-9030/470-5571 og 897-1962.  Netfang: jonas@skolar.fjardabyggd.is. Einnig deildarstjórinn á Breiðdalsvík, Guðný Jónasdóttir í síma 470-5566 og deildarstjórinn á Stöðvarfirði Svandís Jónsdóttir í síma 475-9050.

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér.

Frétta og viðburðayfirlit