mobile navigation trigger mobile search trigger
22.08.2019

Leikskólakennarar við Lyngholt Reyðarfirði

Leikskólinn Lyngholt auglýsir eftir leikskólakennurum eða starfsfólki með sambærilega menntun í tímabundna stöðu með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Leikskólinn er sex deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Við erum skóli á grænni grein og vinnum eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og með ART.

Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst, en um er að ræða 100% starf tímabundið vegna veikinda.

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:
Leikskólakennaramenntun áskilin
Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
Frumkvæði og faglegur metnaður
Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
Reynsla af starfi með börnum
Ábyrgð og stundvísi
Góð íslenskukunnátta æskileg


Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu.

Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til 31 ágúst 2019.

Nánari upplýsingar gefur Lísa Lotta Björnsdóttir, leikskólastjóri í síma 474-1257/860-3176 eða gegnum netfangið: lisalotta@skolar.fjardabyggd.is

Starfslýsing

Sótt er um starfið rafrænt á ráðningarvef Fjarðabyggðar

Frétta og viðburðayfirlit