mobile navigation trigger mobile search trigger
15.10.2018

Leikskólakennari við Leikskólann Kærabæ á Fáskrúðsfirði

Leikskólinn Kæribær á Fáskrúðsfirði auglýsir eftir leikskólakennurum / starfsfólki til starfa.

Leikskólinn er þriggja deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Við vinnum eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar.
Um er að ræða 100% starf.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst.

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:
. Leikskólakennaramenntun áskilin
. Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
. Frumkvæði og faglegur metnaður
. Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
. Reynsla af starfi með börnum
. Ábyrgð og stundvísi
. Góð íslenskukunnátta
Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu.
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til 31.okt. 2018

Sótt er um starfið á ráðningarvef Fjarðabyggðar - starf.fjardabyggd.is

Starfslýsing leikskólakennara

Nánari upplýsingar gefur Ásta Eggertsdóttir, leikskólastýra í síma 475-9055 eða astae@skolar.fjardabyggd.is eða Guðný Elísdóttir aðstoðarleikskólastjóri í 475-9055 eða gudny@skolar.fjardabyggd.is

Frétta og viðburðayfirlit