mobile navigation trigger mobile search trigger
09.04.2021

Skapandi sumarstörf í Fjarðabyggð

Fjarðabyggð leitar að ungu fólki sem fætt er á árunum 1996 til 2004 til að taka þátt í skapandi sumarstarfi Menningarstofu Fjarðabyggðarí allt að tíu vikur á tímabilinu 1. júní til 13. ágúst 2021.

Skapandi sumarstörf eru hugsuð fyrir einstaklinga sem hafa áhuga á að efla listsköpun sína og um leið glæða sveitarfélagið lífi með listrænum og skapandi uppákomum. Starfið hentar fólki með fjölbreyttan áhuga á skapandi greinum og menningu, t.d. á tónlist, myndlist, hönnun, sviðslistum og kvikmyndagerð.

Starfið verður mótað að áhugasviði þátttakenda, en verkefnin þurfa að uppfylla ákveðna skapandi þjónustu við samfélögin, til dæmis að koma fram við ýmis tilefni í byggðakjörnunum eftir því sem tími og aðstæður leyfa. Stefnt er að því að halda uppskeruhátíð skapandi sumarstarfa í lok starfstímans. Gert er ráð fyrir því þátttakendur starfi að mestu leyti sjálfstætt en fái leiðsögn frá verkefnisstjóra hópsins. 

Umsækjendur skila inn kynningarbréfi um sig, áhugasvið sín sem og hugmyndum að verkefnum sem umsækjandi hefur áhuga á að vinna að í sumar. Við val á umsækjendum verður tekið tillit til reynslu umsækjenda, sýnileika og frumleika hugmynda, fjölbreytni, kynjahlutfalls umsækjenda, gæði umsókna o.fl.

Starfslýsing - Skapandi sumarstörf.pdf

Allt að 5 ungmenni fái tækifæri til að vinna skapandi sumarstörf í ár og eru bæði einstaklingar og smærri hópar hvattir til að sækja um. Athugið að í ár kemur Fjarðabyggð ein að skapandi sumarstörfum og því verða umsækjendur að vera búsettir þar.

Sótt er um skapandi sumarstörf hjá Fjarðabyggð á ráðningavef sveitarfélagsins starf.fjardabyggd.is með því að smella hér.Umsóknarfrestur er til og með 23. apríl 2021.

Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Menningarstofu Fjarðabyggðar: Á netfanginu menningarstofa@fjardabyggd.is eða síma 470 9000

Frétta og viðburðayfirlit