mobile navigation trigger mobile search trigger
20.03.2021

Staða leikskólakennara við leikskólann Dalborg

Leikskólinn Dalborg auglýsir eftir leikskólakennurum. Leikskólinn er fjögurra deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Skólinn vinnur eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og ART. Um er að ræða 100 % stöður.

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Ábyrgð og stundvísi
  • Góð íslenskukunnátta

 Starfslýsing leikskólakennara.pdf

Ef ekki fást einstaklingar með viðkomandi menntun, kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu.

Nánari upplýsingar gefur Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 476-1341 eða thordismb@skolar.fjardabyggd.is

Umsóknir og umsóknarfrestur       

Staðan er laus frá 1. ágúst 2021. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ. Umsóknarfrestur er til 3. maí.

Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Sótt erum starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér

Frétta og viðburðayfirlit