mobile navigation trigger mobile search trigger
07.12.2018

Starf forstöðumanns í búsetuþjónustu fatlaðs fólks í Fjarðabyggð

Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar leitar eftir kraftmiklum stjórnanda í búsetuþjónustu fatlaðs fólks í Fjarðabyggð í starfsumhverfi þar sem reynir á stjórnunar-, skipulags- og samskiptahæfni. Starfið er laust frá 1. febrúar 2018.

Í Fjarðabyggð er búsetukjarni og skammtímvistun í Neskaupstað en að auki er veitt þjónusta á heimilum fatlaðs fólks í flestum kjörnum sveitarfélagsins. Forstöðumaður starfar í ráðgjafarteymi og búsetuteymi fjölskyldusviðs og tekur þátt í ýmsum samstarfsverkefnum.

Helstu verkefni og ábyrgð 

  • Dagleg stjórn og skipulag á starfsemi.
  • Stjórnun mannauðs.
  • Þátttaka í þróun og nýbreytni í þjónustu.
  • Tryggja að framkvæmd þjónustu sé í samræmi við lög, reglur, stefnur og markmið fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar. 

Menntunar- og hæfniskröfur 

  • BA- próf í þroskaþjálfafræðum eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi er nauðsynleg.
  • Þekking á réttindum fatlaðra og hugmyndafræði í þjónustu við fatlað fólk er nauðsynleg.
  • Reynsla af stjórnun er æskileg.
  • Frumkvæði og skipulagshæfni.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og samstarfshæfni. 

Launakjör eru skv. kjarasamningi hlutaðeigandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir hönd Fjarðabyggðar. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið.

Umsóknarfrestur er til og með 25. janúar

Nánari upplýsingar veitir Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir félagsmálastjóri í síma 470-9000 eða á netfanginu helga.gudlaugsdottir@fjardabyggd.is

Sótt er um starfið á ráðningarvef Fjarðabyggðar með því að smella hér

Starfslýsing.

Frétta og viðburðayfirlit