mobile navigation trigger mobile search trigger
19.04.2021

Starfsfólk óskast í sumarfrístund í Fjarðabyggð

Langar þér að starfa með börnum í Fjarðabyggð í sumar?

Fjarðabyggð óskar eftir að ráða frístundaleiðbeinendur og stuðningsaðila við fötluð börn í sumarfrístund í Fjarðabyggð.
Starfið í sumarfrístundinni byggist á útivist, hreyfingu, leikjum og fjöri. Sumarfrístundin er fyrir börn sem voru að ljúka 1. - 4. bekk skólaárið 2020-2021. Sumarfrístundin verður opin frá kl. 07:45 til 12:15 frá og með mánudeginum 7. júní til föstudagsins 9. júlí í Neskaupstað, á Eskifirði og á Stöðvarfirði og Breiðdalsvík og frá og með mánudeginum 5. júlí til föstudagsins 9. júlí á Reyðarfirði. Möguleiki er á áframhaldandi starfi hjá Fjarðabyggð eftir að sumarfrístund lýkur á Eskifirði og í Neskaupstað eða áður en hún byrjar á Reyðarfirði.

Helstu verkefni:

  • Gefa börnum tækifæri til að stunda heilsusamlega hreyfingu og þroskandi leiki jafnt úti sem inni.
  • Leiðbeina börnum í leik og starfi í Sumarfrístund.
  •  Hjálpa börnum í sumarfrístund við að skipuleggja og framkvæma verkefni við hæfi.
  • Aðstoða börn í kaffitímum.

Hæfnis- og menntunarkröfur:

  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
  • Áhugi á að vinna með börnum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði.
  • Skipulögð og öguð vinnubrögð.
  • Metnaður og dugnaður.

Starfslýsing frístundaleiðbeinandi við sumarfrístund í Fjarðabyggð 2021.pdf

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Starfið hæfir jafnt konum sem körlum. Umsóknarfrestur er til og með 2. maí 2021.

Nánari upplýsingar veitir Eyrún Inga Gunnarsdóttir forstöðumaður tómstunda- og frístundamála í síma 470 9000 eða í gegnum netfangið eyrun.i.gunnarsdottir@fjardabyggd.is

Sótt er um störfin á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér

Vinsamlegast takið fram í umsókninni hvort þið óskið eftir starfi sem frístundaleiðbeinandi eða í stuðning við fötluð börn.

Frétta og viðburðayfirlit