mobile navigation trigger mobile search trigger
30.07.2019

Starfsmaður við Íþróttamiðstöðina á Reyðarfirði

Laus er til umsóknar 100% staða starfsmanns við Íþróttamiðstöð Reyðarfjarðar. Um er að ræða tímabundna stöðu í vaktavinnu í níu mánuði með möguleika á framtíðarráðningu. Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf þann 1. september nk.

Í starfinu felst m.a.:
• Eftirlit og gæsla með gestum íþróttahús, Fjarðabyggðarhallar og líkamsræktarstöðvar.
• Eftirlit og gæsla með sundgestum.
• Aðstoð við skólabörn, fyrir og eftir sund- og leikfimikennslu.
• Afgreiðsla og önnur þjónusta við börn og aðra gesti.
• Þrif.

Hæfniskröfur
Reynsla af þjónustustörfum er æskileg.
Sjálfstæði í vinnubrögðum.
Frumkvæði og skipulagshæfni.
Hæfni í mannlegum samskiptum.

Laun eru samkvæmt samningum launanefndar sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Frekari upplýsingar um starfið gefur Paulius Naucius, forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar Reyðarfjarðar í síma 849 1160 og í gegnum netfangið paulius.naucius@fjardabyggd.is 

Umsóknarfrestur er til og með 1. september 2019.

Starfslýsing.

Sótt er um starfið á ráðningarvef sveitarfélagsins. 

Frétta og viðburðayfirlit