mobile navigation trigger mobile search trigger

Stöð í Stöð á Stöðvarfirði

01.07.2021 - 04.06.2021

Bæjarhátíðin Støð í Stöð verður haldin helgina 1. til 4. júlí næstkomandi. Takið helgina frá því við lofum miklu fjöri og dagskráin verður ekki af verri endanum frekar en fyrri ár. Má þar nefna, ball með Páli Óskari, Lalli Töframaður mætir á svæðið, Pétur Jesú og Einar úr Buffinu verða einnig á staðnum og að sjálfsögðu verða hoppukastalar og froðubrautin. Ásamt ýmsum öðrum uppákomum.

Stöð í Stöð á Stöðvarfirði

Nánari upplýsingar má finna á Fésbókarsíðu Stöð í Stöð með því að smella hér.

Frétta og viðburðayfirlit