mobile navigation trigger mobile search trigger
03.03.2021

Stöður leikskólakennara við leikskólann Lyngholt

Leikskólinn Lyngholt auglýsir eftir leikskólakennurum. Um er að ræða 100 % stöður tímabundið til eins árs, með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Leikskólinn er sex deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Við erum Grænfána skóli og vinnum eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og ART.

Staðan er laus strax. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ. 

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennari: Leikskólakennaramenntun áskilin
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Ábyrgð og stundvísi
  • Góð íslenskukunnátta

Ef ekki fást einstaklingar með viðkomandi menntun, kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu.

Starfslýsing leikskólakennara.pdf

Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi. Umsóknarfrestur er til 19. mars

Nánari upplýsingar gefur Lísa Lotta Björnsdóttir, leikskólastjóri í síma 474-1257/860-3176 eða á lisalotta@skolar.fjardabyggd.is eða Gerður Ósk Oddsdóttir, aðstoðarskólastjóri í síma 474-1257 eða á gerdur@skolar.fjardabyggd.is

Sótt eru um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér

Frétta og viðburðayfirlit