mobile navigation trigger mobile search trigger
22.02.2021

Störf í félagslegri liðsveislu

Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar óskar eftir að ráða fólk í félagslega liðveislu. Starfið felur m.a. í sér að rjúfa félagslega einangrun einstaklinga og styrkja þá til þátttöku í menningar- og félagslífi.

Hæfniskröfur:

  • Færni í samskiptum við einstaklinga með mismunandi getu og þarfir.
  • Framtakssemi, sjálfstæði og samviskusemi.
  • Hæfni til að setja sig í spor annarra.
  • Hæfni til að styðja og hvetja.
  • Íslenskukunnátta æskileg.

Starfslýsing félagsleg liðveisla.pdf

Vinnutími er sveigjanlegur og getur ýmist verið dag-, kvöld- og/eða helgarvinna. Starfshlutfall fer eftir samkomulagi. Athygli skólafólks er vakin á að í boði er lágt starfshlutfall, þ.e. nokkrar klukkustundir í hverri viku.

Umsóknarfrestur er til 15. mars 2021. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélög.

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Lilja Magnúsdóttir gudrun.i.magnusdottir@fjardabyggd.is eða í síma 470 9000.

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér.

Frétta og viðburðayfirlit