Auglýst er eftir umsóknum um styrk úr Minningarsjóði Ágústar Ármanns Þorlákssonar.
Tónlistarnemendur frá Fjarðabyggð sem hyggja á frekara nám geta sótt um. Einnig geta einstaklingar og stofnanir innan Fjarðabyggðar sótt um til sjóðsins fyrir verkefni sem stuðla að aukinni tónlistarmenntun.
Í umsókninni þarf að koma fram stutt lýsing á verkefninu og fyrir hverja verkefnið er ætlað. Tónlistarnemar þurfa að gera grein fyrir hvaða skóla er verið að sækja, hljóðfæri og greinagóða lýsingu náminu.
Umsóknir berist fyrir 20. febrúar á póstfangið minningarsjoduragustar@gmail.com.