Laus er til umsóknar staða sumarstarfsmanns við afleysingar í félagslegri heimaþjónustu II. Starfshlutfall er eftir samkomulagi.
Í starfinu felst meðal annars að:
- Veita félagslegan stuðning og persónulega aðstoð við notanda.
- Veita notanda aðstoð við öll almenn heimilisstörf sem hann getur ekki annast sjálfur
- Fara með notanda í innkaupaferðir, í banka eða á álíka staði
- Annað sem til fellur til þess að auðvelda notendum eðlilegt heimilislíf
- Hæfniskröfur:
- Sjálfstæði í faglegum vinnubrögðum.
- Frumkvæði og skipulagshæfni.
- Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og framúrskarandi samstarfshæfni.
Starfslýsing heimaþjónusta II.pdf
Laun eru samkvæmt samningum launanefndar sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Frekari upplýsingar um starfið gefur Guðrún Lilja Magnúsdóttir í síma 861 3074 og í gegnum netfangið gudrun.magnusdottir@fjardabyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2019
Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér