mobile navigation trigger mobile search trigger
12.04.2019

Sumarstarfsmaður við Íþróttamiðstöðina í Breiðdal


Laus er til umsóknar staða sumarstarfsmanns við Íþróttamiðstöðina í Breiðdal. Starfið er u.þ.b. 60%, fer eftir samkomulagi en unnið er eftir vaktafyrirkomulagi.

Í starfinu felst m.a.:
Eftirlit og gæsla með sund- og baðgestum
• Eftirlit og gæsla með gestum íþróttahús og líkamsræktarstöðvar
• Afgreiðsla og önnur þjónusta við börn og aðra gesti
• Þrif

Hæfniskröfur:
• Reynsla af þjónustustörfum er æskileg
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
• Frumkvæði og skipulagshæfni
• Hæfni í mannlegum samskiptum

Starfslýsing sundlaugarvarðar í Íþróttamiðstöðinni í Breiðdal.pdf

Laun eru samkvæmt samningum launanefndar sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Frekari upplýsingar um starfið gefur Bjarki Ármann Oddsson íþrótta- og tómstundafulltrúi í síma 893 9098 og í gegnum netfangið bjarki.a.oddsson@fjardabyggd.is

Umsóknarfrestur er til og með 28. apríl 2019

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér

Frétta og viðburðayfirlit