Vilt þú taka þátt í að móta framtíðina?
Vinnuskóli Fjarðabyggðar auglýsir sumarstörf flokkstjóra laus til umsóknar. Í störfunum felst skipulagning og stýring á vinnuhópum unglinga fæddum 2005 og 2006 við ýmis umhverfisstörf. Flokkstjórar þurfa að vera hvetjandi, stundvísir, samviskusamir og góðar fyrirmyndir. Æskilegt er að umsækjendur hafi náð 18 ára aldri, hafi hreint sakavottorð, bílpróf ásamt því að búa yfir skilpulags- og leiðtogahæfileikum.
Í starfinu felst m.a.:
- Almenn garðyrkjustörf. Það er sláttur og hirðing grænna svæði í eigu bæjarfélagsins.
- Þökulagning,
- Útplöntunn mismunandi tegunda plantna og ýmiss önnur skemmtileg útistörf.
Starfslýsing flokkstjóri vinnuskóla
Umsóknarfrestur er til og með 24.maí n.k.
Aðeins er tekið við rafrænum umsóknum í gegnum ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér.