Þjónustu- og framkvæmdamiðstöð óskar eftir sumarstarfsmönnum
Ungt fólk sem lokið hefur 10. bekk (fætt 2003) getur sótt um átta vikna sumarstarf verkamanns. Starfið heyrir undir þjónustu- og framkvæmdamiðstöð Fjarðabyggðar.
- Starf við hin ýmsu störf tengdum þjónustu- og framkvæmdamiðstöð.
- Viðhald gatna.
- Viðhald göngubrúa.
- Verkefni tengd bæjarhátíðum, sláttur og ýmis þjonusta við íbúa.
- Verkefni tengd veitum Fjarðabyggðar.
- Verkefni tengd höfnum Fjarðabyggðar.
Umsóknarfrestur er til og með 20. maí 2019.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins.
Nánari upplýsingar veitir Ari Sigursteinsson bæjarverkstjóri
ari.sigursteinsson@fjardabyggd.is - sími 470-9000.