mobile navigation trigger mobile search trigger
20.03.2021

Þroskaþjálfi við Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla á næsta skólaári

Leitað er að þroskaþjálfa sem er reiðubúnir að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks sem innir af hendi skemmtileg og krefjandi störf með nemendum skólans.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfi til að starfa sem þroskaþjálfi, starfsreynsla er æskileg.
  • Samskipta og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi.
  • Skipulagshæfileikar.
  • Reiðubúin/n að takast á við nýjungar.

Starfslýsing þroskaþjálfa.pdf

Við skólann starfar samhentur hópur starfsfólks sem leggur metnað í góð samskipti og því gerum við kröfu til starfsmanna að þeir búi að ríkulegri samskiptahæfni.

Nánari upplýsingar veitir Jónas Eggert Ólafsson skólastjóri jonas@skolar.fjardabyggd.is; s:897 1962

Umsóknir og umsóknarfrestur       

Staðan er laus frá 1. ágúst 2021. Laun eru samkvæmt kjarasamningum KÍ og Þroskaþjálfafélag Íslands Umsóknarfrestur er til 3. maí

Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér

Frétta og viðburðayfirlit