Bæjarstjórn Fjarðabyggðar auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagi vinnubúða og athafnasvæðis vegna Norðfjarðarganga í Norðfirði samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillaga að deiliskipulagi vinnubúða og athafnasvæðis vegna Norðfjarðarganga í Norðfirði tekur til vinnubúða og athafnasvæðis sem áformað er að setja upp vegna framkvæmda við Norðfjarðargöng í Fannardal. Skipulagssvæðið er 10,3 ha að stærð.
Deiliskipulagstillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð og í þjónustugátt bókasafns Neskaupstaðar, frá og með 25.júlí 2013 til og með 6. september 2013. Athugsemdafrestur er til sama tíma.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við deiliskipulagstillöguna. Skila skal skriflegum athugasemdum til skipulagsfulltrúa á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna teljast henni samþykkir.
Skipulagsfulltrúinn í Fjarðabyggð