mobile navigation trigger mobile search trigger
17.08.2018

Tónskóli Neskaupstaðar - Innritun fyrir skólaárið 2018-2019

Tónskóli Neskaupstaðar

Innritun fyrir skólaárið 2018-2019

Innritað verður í Tónskóla Neskaupstaðar, Skólavegi 9

Fimmtudag  23. ágúst frá kl. 14 -16,  eiga þeir nemendur að mæta sem sóttu um skólavist í vorinnritun, til að staðfesta umsóknir sínar og fá tíma.                                                             

Nemendur frá síðasta skólaári halda plássum sínum óski þeir að halda áfram námi og mæti þennan dag til að staðfesta umsóknir sínar, annars verður þeirra tímum úthlutað til annara nemenda.

Föstudag  24. ágúst frá kl. 14 – 16, innritun fyrir nýja nemendur.

 

Foreldrar / forráðamenn  eru beðnir um að mæta með nemendum við innritun og vinsamlega takið með ykkur stundaskrár almennu skólanna.

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá mánudag 27. ágúst.

 

Kennarar Tónskóla Neskaupstaðar.

Frétta og viðburðayfirlit