Ábending

Öllum erindum verður svarað eins fljótt og kostur er. Athugið að um ábendingu er að ræða en ekki verkbeiðni.
ATH! ef erindið varðar barnavernd bendum við á að eftirfarandi síðu sem hlíta sérstökum persónuverndarskilyrðum.
Fylltu út formið hér að neðan til að senda inn ábendingu
Ljósastaur óvirkur? Láttu okkur vita
Nú þegar farið er að dimma er gott að fá ábendingar um ljósastaura sem ekki kviknar á. Með því að gefa upp auðkenni staursins eða merkja staðsetningu hans á korti hjálpar þú starfsfólki Fjarðabyggðar að finna rétta staurinn, líka í dagsbirtu.
Finndu ljósastaurinn í kortasjánni
Í kortasjá Fjarðabyggðar má sjá staðsetningu ljósastaura og auðkenni þeirra. Svona ferðu að:
- Opnaðu kortasjána.
- Í valmyndinni hægra megin velur þú Veitur og síðan Lýsing gatna og stíga.
- Þysjaðu inn á viðkomandi götu þar til ljósastaurarnir og auðkenni þeirra sjást.
- Finndu staurinn og gefðu upp auðkenni hans þegar þú sendir ábendinguna. Auðkennið samanstendur af þremur bókstöfum og númeraröð.
Þú getur einnig merkt staðsetningu staursins á korti og sent myndina með ábendingunni. Ef þú finnur ekki auðkennið er hjálplegt að lýsa staðsetningunni eins nákvæmlega og hægt er, til dæmis með götuheiti og næsta húsnúmeri.