Gjaldskrá fyrir frístundaheimili í Fjarðabyggð
Gjaldskrá þessi á við um skólafrístund, vetrarfrístund, sumarfrístund og lengda viðveru.
Gildir frá 1. maí 2026
Frístund – gjaldskrá
| Þjónusta | Gjald |
|---|---|
| Frístund (fram að kl. 16:00) | 369 kr. / klst. |
| Frístund eftir kl. 16:00 | 369 kr. / 15 mín. |
Vistun fram yfir kl. 16:00 kostar 369 kr. á dag.
Systkinaafsláttur
Systkinaafsláttur er milli vistunargjalds á frístundaheimili og vistunargjalds í leikskóla.- Fullt gjald fyrir barn í lengstri vistun.
- 50% afsláttur fyrir annað barn.
- Frítt fyrir þriðja barn.
Greiðslur og uppsagnir
- Gjaldið greiðist mánaðarlega.
- Uppsagnarfrestur er til 20. hvers mánaðar og tekur gildi 1. næsta mánaðar.
- Breytingar á vistun fara eftir sömu reglu.
- Ef greiðsla dregst í tvo mánuði getur vistun verið felld niður að undangenginni viðvörun.
Réttur til gjaldfrjálsrar vistunar
Nemendur í 1.–4. bekk sem bíða eftir skólaakstri eiga rétt á gjaldfrjálsri vistun á meðan beðið er.
Tekjutengdur afsláttur
- Einstaklingar undir 9.000.000 kr.: 50% afsláttur.
- Sambúðarfólk undir 13.600.000 kr.: 50% afsláttur.
Tekið er mið af meðaltekjum síðustu 12 mánaða samkvæmt staðgreiðsluskrá.
Sótt er um afslátt rafrænt í íbúagátt og skila þarf staðgreiðsluskrá. Umsókn skal endurnýja árlega, eigi síðar en 20. ágúst.
Reglur um niðurfelling gjalda
- Helmingur gjalda fellur niður við veikindi barns í 4 vikur eða lengur með læknisvottorði.
- Langveik börn eru metin sérstaklega af skólastjóra í hverju tilviki.
