Fara í efni

Íþróttastarf

Í Fjarðabyggð er öflugt og fjölbreytt íþróttastarf fyrir fólk á öllum aldri. Í sveitarfélaginu gefast börnum, ungmennum og fullorðnum fjölmörg tækifæri til að stunda hreyfingu, efla færni sína og taka þátt í jákvæðu og uppbyggilegu félagsstarfi í nærumhverfinu.

Í boði eru fjölbreyttar íþróttagreinar, meðal annars knattspyrna, sund, blak, glíma, körfubolti, skíði, golf, hestaíþróttir, kajak, pílukast, og brettaíþróttir. Framboðið getur verið breytilegt eftir aldri, staðsetningu og árstíma, en markmiðið er að sem flest finni hreyfingu og starf við sitt hæfi.

Meðal félaga sem tengjast íþrótta- og æfingastarfi í Fjarðabyggð eru Knattspyrnufélag Austfjarða (KFA), Þróttur Neskaupstað, Ungmennafélagið Austri á Eskifirði, Ungmennafélagið Valur á Reyðarfirði, Ungmennafélagið Leiknir á Fáskrúðsfirði, Súlan á Stöðvarfirði og Hrafnkell Freysgoði á Breiðdalsvík. Að auki eru Skíðafélag Fjarðabyggðar, Brettafélag Fjarðabyggðar, Körfuknattleiksfélag Fjarðabyggðar, Golfklúbbur- Byggðaholts og Fjarðabyggðar og Hestamannafélagið Blæ. 

Á Abler er að finna yfirlit yfir það íþróttastarf sem í boði er, ásamt nánari upplýsingum um æfingar, aldurshópa, tímasetningar og skráningu. Á síðunni geta íbúar skoðað framboðið og fundið það starf sem hentar best. 

Á Abler er að finna yfirlit yfir það íþróttastarf sem í boði er, ásamt nánari upplýsingum um æfingar, aldurshópa, tímasetningar og skráningu. Á síðunni geta íbúar skoðað framboðið og fundið það starf sem hentar best.

Skoða íþróttastarf í boði á Abler