Fara í efni

Refa- og minkaveiðar

Hvert grenjaveiðitímabil vegna refaveiða stendur yfir frá 1. maí til 31. júlí ár hvert. Á því tímabili er einungis ráðnum veiðimönnum heimilt að veiða grendýr og yrðlinga. Utan grenjavinnslutíma er greiðsla fyrir refaskott einungis greidd refaskyttum með samning við Fjarðabyggð, skv. samningi þeirra þar um. Öll veiði er bönnuð innan friðlýstra svæða í Fjarðabyggð nema friðlýsingarákvæði svæðisins heimili annað. Hægt er að sækja um undanþágu til umhverfis- og skipulagsnefndar á grenjavinnslu refs inn á friðlýstum svæðum.

Refaveiðar – grenjaveiðitímabil

  • Grenjaveiðitímabil stendur frá 1. maí til 31. júlí ár hvert
  • Á þessu tímabili er einungis ráðnum veiðimönnum heimilt að veiða:
    • Grendýr
    • Yrðlinga

Refaveiðar utan grenjatíma

  • Utan grenjaveiðitímabils er einungis greitt fyrir veidda refi til veiðimanna sem eru með samning við Fjarðabyggð
  • Greiðsla er samkvæmt gildandi samningi hverju sinni

Minkaveiðar

Grenjaveiðitímabil

  • Veiðimenn eru ráðnir sérstaklega til grenjavinnslu á mink frá 20. apríl til 30. júní
  • Á þessu tímabili eru veiðimenn samningsbundnir og fá greitt fyrir veiðar samkvæmt samningi við Fjarðabyggð

Veiðar utan grenjavinnslutíma

  • Frá 1. júlí til 19. apríl er öllum veiðimönnum heimilt að veiða mink
  • Greitt er 3.000 kr. fyrir hvert minkaskott utan samningstímabils

Friðlýst svæði

  • Öll veiði er bönnuð innan friðlýstra svæða í Fjarðabyggð, nema annað sé tekið fram í friðlýsingarskilmálum
  • Hægt er að sækja um undanþágu til skipulags- og framkvæmdarnefndar Fjarðabyggðar
  • Gildir bæði fyrir refa- og minkaveiðar innan friðlýstra svæða
  • Undanþága þarf að vera veitt skriflega
Síðast uppfært: 20.08.2025