Fara í efni

Sveitarstjórnarkosningar 2026

Upplýsingasíða um sveitarstjórnarkosningar í Fjarðabyggð 2026

Sveitarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 16. maí 2026. Á þessari upplýsingasíðu má finna helstu upplýsingar um kosningarnar í Fjarðabyggð, svo sem framboðslista, kjörstaði, opnunartíma, upplýsingar um utankjörfundarkosningu og annað sem nýtist kjósendum.

Markmiðið er að safna saman skýrum og gagnlegum upplýsingum á einum stað fyrir íbúa Fjarðabyggðar.

Mikilvægar dagsetningar

  • 10. apríl rennur framboðsfrestur út
  • 17. apríl hefst utankjörfundaratkvæðagreiðsla
  • 16. maí er kjördagur

Hægt verður að sjá hvar kjósendur eru á kjörskrá á vef skra.is þann 10. apríl.

Athygli er vakin á vefnum kosning.is en þar verða birtar upplýsingar um sveitarstjórnarkosningarnar 2026.

Framboðslistar í Fjarðabyggð vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026

  1. Þuríður Lillý Sigurðardóttir — bóndi og bæjarfulltrúi
  2. Birgir Jónsson — skólameistari og bæjarfulltrúi
  3. Helga Rakel Arnardóttir — skrifstofustjóri og sjúkraflutningam.
  4. Sigurjón Andrés Jónasson — álversstarfsmaður
  5. Bjarney Birta Bergsdóttir — háskólanemi
  6. Guðbjartur Hjálmarsson — húsasmíðameistari
  7. Sigrún Eva Grétarsdóttir — námsráðgjafi
  8. Björgvin Karl Gunnarsson — knattspyrnuþjálfari
  9. Tinna Hrönn Smáradóttir — iðjuþjálfi
  10. Alma Eiðsdóttir — hársnyrtir
  11. Vilberg Marinó Jónasson — slökkviliðs- og sjúkraflutningam.
  12. Margrét Sigfúsdóttir — ferðaþjónustubóndi
  13. Jórunn Dagbjört Jónsdóttir — bóndi
  14. Halldór B. Bjarneyjarson — kennari og knattspyrnuþjálfari
  15. Linda María Emilsdóttir — stuðningsfulltrúi
  16. Sara Rut Mellado Vilbergsdóttir — háskólanemi
  17. Kristján Guðni Sævarsson — nemi
  18. Jón Björn Hákonarson — forseti bæjarstjórnar og form. Sambands íslenskra sveitarfélaga
  1. Ragnar Sigurðsson — framkvæmdastj og form. bæjarráðs
  2. Kristinn Þór Jónasson — þjónustustjóri
  3. Þórdís Mjöll Benediktsdóttir — leikskólastjóri
  4. Húnbogi Sólon Gunnþórsson — verkefnastjóri
  5. Tanja Tómasdóttir — aðstoðarmaður gæðastjóra
  6. Friðrik Júlíus Jósefsson — byggingaiðnfræðingur
  7. Bryngeir Ágúst Margeirsson — verkamaður
  8. Hildur Ósk Pétursdóttir — leikskólastjóri
  9. Anton Berg Sævarsson — húsasmiður og hagfræðinemi
  10. Ingunn Eir Andrésdóttir — viðskiptafræðingur
  11. Theodór Elvar Haraldsson — skipstjóri
  12. Sóley Katrín Heiðarsdóttir — sjávarútvegsfræðingur
  13. Guðný Margrét Bjarnadóttir — kennari
  14. Sölvi Guðmundarson — aðstoðarhótelstjóri
  15. Simona Giastautiené — verkamaður
  16. Íris Katla Guðmundsdóttir — umhverfis- og auðlindafræðingur
  17. Sigurjón Rúnarsson — sjúkraþjálfari
  18. Kristinn Aðalsteinsson — fjárfestir
  1. Hrafn Bjarnason — verkefnastjóri
  2. Alma Sigurbjörnsdóttir — sálfræðingur
  3. Baldur Marteinn Einarsson — útgerðarstjóri
  4. Hafþór Eiríksson — rekstrarstjóri
  5. Anna Guðný Gunnarsdóttir — sjálfstætt starfandi bókari
  6. Elís Ármannsson — hafnarvörður
  7. Guðný Harðardóttir — sauðfjárbóndi
  8. Sævar Þór Skoradal — álversstarfsmaður
  9. Anna Þórhildur Kristmundsdóttir — sálfræðinemi
  10. Jóna Petra Magnúsdóttir — kennari
  11. Guðröður Hákonarson — hótelstjóri
  12. Júlíus Óli Jacobsen — sölu- og þjónusturáðgjafi
  13. Þorbergur Níels Hauksson — fv. slökkviliðsstjóri
  14. Magnea María Jónudóttir — húsfreyja
  15. Þórunn Ólafsdóttir — bókari
  16. Guðmundur Björgólfsson — verktaki
  17. Gestur Sigmundsson — bóndi
  18. Rúnar Már Gunnarsson — verktaki
  1. Stefán Þór Eysteinsson — fagstjóri
  2. Hjördís Helga Seljan — kennsluráðgjafi
  3. Valborg Ösp Á. Warén — verkefnastjóri
  4. Adam Ingi Guðlaugsson — vélfræðingur og rafvirki
  5. Arndís Bára Pétursdóttir — aðstoðarskólastjóri
  6. Ásdís Helga Jóhannsdóttir — sérfræðingur á kjarasviði
  7. Birkir Snær Guðjónsson — varaformaður
  8. Esther Ösp Gunnarsdóttir — hönnuður
  9. A. Eva Sigurðardóttir — leiðbeinandi
  10. Jaroslaw Zajaczkowski — sviðsstjóri
  11. Salóme Rut Harðardóttir — íþróttakennari
  12. Joanna Katarzyna Mrowiec — kennari
  13. Oddur Sigurðsson — bóndi
  14. Sveinn Fannar Sæmundsson — sagnfræðingur
  15. Anna Sigrún Jóhönnudóttir — öryrki/verslunareigandi
  16. Kristrún Antonsdóttir — félagsliði
  17. Benedikt Sigurjónsson — fv. bæjarverkstjóri
  18. Björn Hafþór Guðmundsson — eldri borgari

Kjörstaðir við sveitarstjórnarkosningarnar þann 16. maí næstkomandi munu verða á eftirtöldum stöðum í hverjum byggðakjarna:

  • Sólbrekka í Mjóafirði
  • Nesskóli í Neskaupstað
  • Eskifjarðarkirkja á Eskifirði
  • Safnaðarheimilið á Reyðarfirði
  • Grunnskólinn á Fáskrúðsfirði
  • Grunnskólinn á Stöðvarfirði
  • Grunnskólinn á Breiðdalsvík

Kjörstaðir verða opnir frá klukkan 09:00 - 22:00 nema í Mjóafirði þar verður opið til klukkan 14:00. 

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninga sem fram eiga að fara laugardaginn 16. maí nk. hefst á skrifstofum embættisins á Egilsstöðum, Seyðisfirði, Eskifirði og Vopnafirði þann 17. apríl 2026 kl. 9:00.

Kjörkassar þeirra sveitarfélaga þar sem skrifstofur sýslumanns eru staðsettar verða aðgengilegir kjósendum venju samkvæmt fyrir milligöngu formanna kjörstjórna.

Hver má kjósa?
Í sveitastjórnarkosningum byggir kosningarréttur á lögheimili, en í öðrum kosningum er það fyrst og fremst ríkisborgararéttur. Kosningaréttur gildir í því sveitarfélagi þar sem viðkomandi er skráður með lögheimili. Erlendir ríkisborgarar sem eru 18 ára og eldri og hafa haft lögheimili á Íslandi í samfleytt 3 ár hafa kosningarétt.

Kosning untan kjörfundar
Ef kjósendur geta ekki kosið á kjördag er hægt að kjósa utan kjörfundar, hjá sýslumönnum eða erlendis.

Hvar kýs ég?
Sá staður sem kosið er á kallast kjörstaður. Kjósandi kýs á kjörstað í því sveitarfélagi sem hann er á kjörskrá í. Kjörskrá verður birt í apríl og þá verður hægt að fletta upp hvar kjósandi á að kjósa. Kjörstaðir eru almennt opnir frá klukkan 9 að morgni til klukkan 22 að kvöldi kjördags. 
Athugið að í ár verða 3 kjörstaðir í Reykjanesbæ.

Hvernig kýs ég?

  • Finndu þína kjördeild

  • Hafðu skilríkin tilbúin

  • Settu X við það framboð sem þú kýst

  • Brjóttu kjörseðilinn saman og settu hann í atkvæðakassann

Aðstoð við kosningu
Allir kjósendur geta fengið aðstoð við að kjósa og þurfa ekki að gefa neinar ástæður fyrir því. Kjósandi getur komið með eigin aðstoðarmann eða fengið aðstoð frá starfsfólki kosninga.