Fara í efni

Bæjarráð

139. fundur
3. mars 2009 kl. 09:00 - 11:00
Molinn fundarherbergi 1 og 2
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2009 - Hagræðingarleiðir
Málsnúmer 2009-01-23-102
Þennan lið fundarins sátu starfandi tómstundastjóri og æskulýðs- og íþróttafulltrúi og gerðu grein fyrir hagræðingarleiðum í málaflokki 06.
2.
Umsókn um styrk vegna húsbyggingar
Málsnúmer 2009-02-24-276
Framlagt bréf Björgunarsveitarinnar Ársólar frá 16.2. þar sem farið er fram á styrk til að ljúka viðbyggingu á húsi sveitarinnar Þórðarbúð. Bæjarráð getur ekki orðið við beiðni um frekari styrki til sveitarinnar
3.
Breytingar á tillögu um deiliskipulag á Neseyri
Málsnúmer 2009-02-25-282
Framlögð til kynningar greinargerð skipulagsfulltrúa frá 24.2. vegna breytinga á tillögu um deildiskipulag á Neseyri í Neskaupstað.
4.
Viðræður um sameiginlegan rekstur félagsþjónustu
Málsnúmer 2009-02-24-279
Bréf Fljótsdalshéraðs frá 20.2. þar sem tilkynnt er um skipan í viðræðuhóp um sameiginlegan rekstur félagsþjónustu Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðs. Bæjarráð skipar bæjarstýru, félagsmálastýru og formann félagsmálanefndar í viðræðuhóp f.h. Fjarðabyggðar.
5.
Umsókn Fjarðabyggðar um heimild til að fara með virkan eignarhlut í Sparisjóði Norðfjarðar
Málsnúmer 0902051
Framlagt bréf Fjármálaeftirlitsins frá 19.2. þar sem óskað er eftir frekari gögnum vegna umsóknar um heimild til að fara með virkan eignarhlut í Sparisjóði Norðfjarðar. Bæjarráðsmenn undirrituðu yfirlýsingu í samræmi við óskir Fjármálaeftirlitsins.
6.
MÍF nr. 21 frá 23.2.
Málsnúmer 0903002
4.liður. Samvinna skíðasvæðanna í Oddsskarði og Stafdal.
7.
Samvinna skíðasvæðanna í Oddsskarði og Stafdal
Málsnúmer 2009-02-11-196
Framlagt til kynningar svarbréf ferða- og menningarfulltrúa frá 25.2. við bréfi bæjarstjórans á Seyðisfirði frá 3.2.
8.
Umsókn um byggðakvóta fyrir Stöðvarfjörð
Málsnúmer 0902042
Framlögð umsókn bæjarstýru frá 25.2. um byggðakvóta fyrir Stöðvarfjörð.
9.
Umsókn um byggðakvóta fyrir Fáskrúðsfjörð
Málsnúmer 0902043
Framlögð umsókn bæjarstýru frá 25.2. um byggðakvóta fyrir Fáskrúðsfjörð.
10.
Vitaverkefnið á Listahátíð 2009
Málsnúmer 0903022
Framlagt til kynningar samningur Listahátíðar í Reykjavík við Menningarráð Austurlands og Fjarðabyggð vegna Dalatangavita í Vitaverkefninu á Listahátíð 2009.
11.
Snjóflóðavarnir Norðfirði
Málsnúmer 0903024
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins . Rætt um framkvæmdaáætlun verksins.
12.
Vegaskrá
Málsnúmer 0903014
Framlagt til kynningar minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna fundar sambandsins með Vegagerð ríkisins sem haldinn var 25.2.
13.
Viðbót við samþykkt um stjórn Fjarðabyggðar og fundarsköp bæjarstjórnar
Málsnúmer 2009-01-23-102

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi bráðabirgðaákvæði við samþykkt um stjórn Fjarðabyggðar: Þrátt fyrir ákvæði 7.gr. 1.mgr. um fundartíma bæjarstjórnar skal bæjarstjórn að jafnaði halda reglulega fundi einu sinni í mánuði, 1.fimmtudag hvers mánaðar til loka yfirstandandi kjörtímabils. Þrátt fyrir ákvæði 45.gr. 1.mgr. um fundartíma bæjarráðs skal bæjarráð að jafnaði halda fundi aðra hverja viku á reglulegum fundartímum til loka þessa kjörtímabils. Aðrar nefndir, ráð eða stjórnir skulu með sama hætti fækka fundartímum þannig að reglulegir fundir séu að jafnaði haldnir mánaðarlega. Í hagræðingarskyni skal halda símafundi þegar þess er kostur. <?xml:namespace prefix = o />

Greinargerð fylgir tillögu.

14.
Atvinnuleysi í Fjarðabyggð
Málsnúmer 0903023
Bæjarstýra lagði fram minnispunkta vegna fundar sem haldinn var 27.2. með fulltrúm AFLs, Þekkingarnets Austurlands, Austurnets, Rauða Krossinum og Vinnumálastofnun.
 
Valdimar vék af fundi kl.10:10.
15.
Bygginga- og lóðaframkvæmdir.
Málsnúmer 0903001
Þennan lið fundarins sat Lulu Munk Andersen byggingafulltrúi.
Framlögð gögn vegna byggingaframkvæmda á árunum 2006 - 2008