Fara í efni

Bæjarráð

140. fundur
10. mars 2009 kl. 09:00 - 11:00
í Molanum fundarherbergi 1 og 2
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2009 - Hagræðingarhugmyndir
Málsnúmer 2009-01-23-102
Þennan lið fundarins sátu forstöðukona fjármála, forstöðumaður mannauðsmála, fræðslustjóri, framkvæmdastjóri hafnanna og mannvirkjastjóri. Rætt var um endurskoðun og endurskipulagningu vegna launaútgjalda.  
2.
Stuðningur sveitarfélaga við íþróttastarf
Málsnúmer 2009-02-17-234
Framlögð beiðni Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar um aukinn styrk á árinu 2009. Frestað til næsta fundar.
3.
Umfjöllun um lóðamál við Mjóeyrarhöfn
Málsnúmer 2009-02-13-215
Umsagnir framkvæmdastjóra Fjarðabyggðarhafna frá 2.3. og skipulagsfulltrúa frá 18.2. Frestað til næsta fundar.
4.
Afmælisár Eskilstuna
Málsnúmer 0903028
Boð um þátttöku í 350 ára afmæli Eskilstuna. Frestað.
5.
Atvinnuleysi í Fjarðabyggð
Málsnúmer 0903023
Tölur um atvinnuleysi í Fjarðabyggð. Frestað
6.
Uppgjör vegna skýrslugerðar um jarðgangagerð
Málsnúmer 0903036
Lagður fram tölvupóstur bæjarstjórans á Seyðisfirði er varðar uppgjör vegna skýrslugerðar um jarðgangnagerð. Frestað til næsta fundar
7.
Umsókn stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur um NORA styrk
Málsnúmer 0903037
Lögð fram umsókn Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur um NORA styrk. Frestað
8.
Áætlanir um úthlutanir framlaga á árinu 2009
Málsnúmer 0903003
Lagt fram bréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 20.2. um áætlanir vegna úthlutana framlaga á árinu 2009. Erindi hefur verið vísað til fjármálasviðs.
9.
Upplýsingar vegna vatns- og jarðhitaréttinda
Málsnúmer 0903033
Lagt fram bréf forsætisráðuneytisins frá 2.3.2009 er varðar beiðni um upplýsingar vegna vatns- og jarðhitaréttinda. Erindi hefur verið vísað til mannvirkjasviðs.