Fara í efni

Bæjarráð

144. fundur
14. apríl 2009 kl. 09:00 - 11:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Fundargerð Heilbrigðiseftirlits Austurlands frá 25.mars.
Málsnúmer 0904002
Fundargerð lögð fram til kynningar.
2.
Fundargerð stjórnar Samband íslenskra sveitarfélaga frá 26. mars
Málsnúmer 0904006
Fundargerð lögð fram til kynningar.
3.
Siglingar Mjóafjarðarferju
Málsnúmer 0904005
Lagt fram bréf Sigfúsar Vilhjálmssonar frá 1.apríl er varðar niðurgreiðslur á ferðum með Mjóafjarðarferju. Lögð fram fundargerð frá fundi 7.apríl um ferjusiglingar til Mjóafjarðar.
4.
Mótmælendalisti vegna veghefils á Norðfirði
Málsnúmer 0903153

Framlagt bréf Herborgar Þóru Ármannsdóttur frá 20.3. og undirskriftarlisti þar sem mótmælt er áformum um að selja eigi veghefil sem séð hefur um snjómokstur í Neskaupstað.  Vísað til innleiðingarhóps vegna breytinga á starfsháttum þjónustumiðstöðvar og umhverfisdeildar.<?xml:namespace prefix = o />

 

5.
Aðalfundur Loðnuvinnslunnar hf
Málsnúmer 0904017
Aðalfundur Loðnuvinnslunnar verður haldinn föstudaginn 17.apríl. Guðmundur Þorgrímsson mun sækja fundinn.
6.
Aðalfundur Menningarráðs Austurlands
Málsnúmer 0904031
Aðalfundur Menningarráðs Austurlands verður haldinn 7.maí á Borgarfirði Eystri.  Vísað til MÍF.
7.
Fundargerð mannvirkjanefndar frá 30.mars
Málsnúmer 0903030F
Fundargerð lögð fram.
8.
Viðtalstími bæjarfulltrúa 26.febrúar
Málsnúmer 0904035
Framlögð samantekt vegna viðtalstíma bæjarfulltrúa í lok febrúar. Forstöðumanni stjórnsýslu falið að afla svara vegna fyrirspurna í viðtalstímanum.