Fara í efni

Bæjarráð

145. fundur
21. apríl 2009 kl. 09:00 - 11:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Samantekt frá sveitarfélögum vegna hagræðingar í skóla- og fræðslumálum
Málsnúmer 0904033
Framlagðir til kynningar minnispunktar ásamt fylgiskjölum, vegna fundar sambandsins með menntamálaráðherra frá 6.apríl.
2.
Aðstöðuleysi 16-25 ára ungmenna
Málsnúmer 0903115
Framlögð sem vinnuskjal umsögn félagsþjónustusviðs frá 17.4. vegna bréfs áfallaráðs í Neskaupstað frá 18.3.  Starfandi félagsmálastjóri sat þennan lið fundarins. Bæjarráð vísar málinu til áframhaldandi vinnslu félagsþjónustusviðs með beiðni um greiningu á áætluðum kostnað.
3.
Nýsköpun og frumkvöðlastarf í matariðnaði á Austurlandi
Málsnúmer 0904042
Beiðni Austfirskra krása um styrk.  Bæjarráð samþykkir að veita 50.000 kr. styrk af liðnum 21-69-.
4.
Viðveru- og tímaskráningarkerfi
Málsnúmer 0904050
Framlögð tillaga mannauðsstjóra frá 21.4. vegna kaupa á viðveru- og tímaskráningarkerfi fyrir Fjarðabyggð. Þennan lið fundarins sat mannauðsstjóri og fór yfir fyrirhuguð kaup á viðveru- og tímaskráningarkerfi og kostnað vegna kaupanna.  Á grundvelli útboðs á viðveru- og tímaskráningarkerfi fyrir Fjarðabyggð felur bæjarráð mannauðsstjóra að ganga til samninga um kaup á einu af þremur kerfum sem voru í forvali að undangengnu mati ráðgjafa.
5.
Áherslur SSA í nýrri Byggðaáætlun 2010-2013
Málsnúmer 0904036
Lagt fram til kynningar.
6.
Breytingar á vinabæ Fjarðabyggðar í Finnlandi
Málsnúmer 0904039
Tilkynning um að Jyvaskyla vinabær Fjarðabyggðar hafi sameinast Korpilahti undir nafninu Jyvaskyla.
7.
Tillögur að breytingum á tilhögun ferjusiglinga til Mjóafjarðar
Málsnúmer 0904028
Framlagt til kynningar dreifibréf bæjarstýru til íbúa í Mjóafirði vegna ferjusiglinga milli Mjóafjarðar og Norðfjarðar. Bæjarráð mun funda með Mjófirðingum á næstunni.
8.
Staða og horfur hjá sveitarfélögunum
Málsnúmer 0904054
Framlagðir til kynningar minnispunktar frá símafundi aðildarsveitarfélaga SSA sem haldinn var 7.4.
9.
Fræðslunefndarfundur nr.16 frá 8.4.2009
Málsnúmer 0903018F
Fundargerð lögð fram.
10.
Öldrunarþjónustunefnd nr.10 frá 7.4.2009
Málsnúmer 0904002F
Fundargerð lögð fram.