Fara í efni

Bæjarráð

152. fundur
11. júní 2009 kl. 09:00 - 11:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Uppgjör við fyrrum rekstraraðila Valhallar
Málsnúmer 0905120
Bréf Kristins Þórs Jónassonar fyrrum rekstraraðila Valhallar á Eskifirði frá 19.5.  Farið yfir forsögu málsins. Tekið fyrir á næsta fundi.
2.
Upplýsingar um stöðu framkvæmda vegna nýbyggingar leikskóla í Neskaupstað og lóðamál Sólvalla
Málsnúmer 0905139
Bréf stjórnar foreldrafélags Sólvalla frá 19.5. þar sem óskað er eftir upplýsingum varðandi stöðu framkvæmda við nýjan leikskóla í Neskaupstað auk þess sem spurst er fyrir um endurbætur á lóð Sólvalla þar sem framkvæmdir við nýjan leikskóla hafa frestast.
Vísað til mannvirkjasviðs með beiðni um umsögn.
3.
Umsókn um styrk vegna Sjómannadagshátíðar á Eskifirði
Málsnúmer 0906005
Beiðni Jens Garðars Helgasonar, f.h. Sjómannadagsráðs á Eskifirði.  Jens vék af fundi við afgreiðslu málsins. Bæjarráð kann aðstandendum sjómannadagshátíðarhalda í Fjarðabyggð bestu þakkir fyrir mikinn myndarbrag við framkvæmd hátíðarhalda og vísar beiðni um styrk til afgreiðslu hafnarstjórnar.
4.
Þjónustumiðstöð fyrir olíurannsóknir og vinnslu
Málsnúmer 0906022
Lagt fram svar við fyrirspurn frá Olíudreifingu ehf. varðandi þjónustumiðstöð fyrir olíurannsóknir- og vinnslu.
5.
Starf félagsráðgjafa hjá Félagsþjónustusviði Fjarðabyggðar
Málsnúmer 0906004
Framlögð til kynningar greinargerð starfandi félagsmálastjóra frá 2.6.
6.
Norðfjarðargöng
Málsnúmer 0904093
Framlögð til kynnningar greinargerð skipulagsfulltrúa frá 28.5. um endurheimt votlendis í landi Hólma.
7.
Greinagerð frá verkefnastjóra móttöku nýrra íbúa
Málsnúmer 0906028
Greinargerð verkefnastjóra frá 28.5. og minnisblað frá fundi verkefnastjórnar 28.5. lagt fram til kynningar.
8.
Málefni Golfklúbbs Eskifjarðar
Málsnúmer 0906033
Rætt um málefni Golfklúbbs Eskifjarðar.  Vísað til tómstundastjóra með beiðni um upplýsingar frá golfklúbbunum á grundvelli 2.liðar í samningum frá desember 2006.
9.
Rafrænar kosningar - tilraunaverkefni
Málsnúmer 0906015
Bréf samgönguráðuneytisins frá 28.5. þar sem óskað er eftir viðbrögðum frá þeim sveitarfélögum sem áhuga hafa á að taka þátt í tilraunaverkefni vegna rafrænna kosninga.  Bæjarráð sér ekki tilefni til þátttöku.
10.
Frumvarp til vegalaga
Málsnúmer 0906011
Bréfi Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 27.5. vísað til mannvirkjasviðs
11.
Reglur um skólaakstur - til umsagnar
Málsnúmer 0905140
Lagt fram til kynningar. Vísað til fræðslunefndar.
12.
Fundarboð Veiðifélags Dalsár í Fáskrúðsfirði 4.júní
Málsnúmer 0905127
Lagt fram til kynningar.
13.
Fundagerð 764.fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 0905157
Fundargerð lögð fram til kynningar.
14.
Vinna við eflingu sveitarstjórnarstigsins
Málsnúmer 0905153
Lagður fram til kynningar tölvupóstur og frétt samgönguráðuneytisins frá 8.5.
15.
Áherslur sambandsins á samráðsfundum með ráðherrum
Málsnúmer 0906032
Framlagt til kynningar minnisblað frá 4.6.
16.
Minnisblað frá fundi starfshóps aðila vinnumarkaðarins um efnahags- og atvinnumál
Málsnúmer 0906034
Framlagðir til kynningar minnispunktar frá fundi 4.6.
17.
Breyting á reglum Starfsmenntunarsjóðs STAF
Málsnúmer 0906046
Bæjarráð samþykkir breytingar á reglum Starfsmenntunarsjóðs Starfsmannafélags Fjarðabyggðar.
18.
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr.30 frá 29.5.
Málsnúmer 0905024F
Fundargerð lögð fram.
19.
Fundargerð hafnarstjórnar nr.59 frá 3.6.
Málsnúmer 0905027F
Fundargerð lögð fram.
20.
Minnisblað frá fundi starfshóps aðila vinnumarkaðarins um efnahags- og atvinnumál
Málsnúmer 0906034
Minnisblað dagsett 6.6. lagt fram til kynningar.
21.
Endurskoðun á samstarfi sveitarfélaga í SSA
Málsnúmer 0906052
Spurningar frá SSA sem óskað er eftir að verði svarað fyrir mánaðarmót. Tekið fyrir á næsta fundi.
22.
Vélsmiðjan á Eyrinni
Málsnúmer 0906058
Erindi Frú Lúlú frá 10.6. þar sem óskað er eftir afnotum af Vélsmiðjunni á Eyrinni í Neskaupstað í tengslum við Eistnaflug. Bjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar afgreiðslu þess til mannvirkjasviðs.
23.
Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027
Málsnúmer 0906051
Bréf Skipulagstofnunar frá 5.6. þar sem fram koma athugasemdir sem bregðast þarf við áður en skipulagið verður afgreitt af Skipulagsstofnun til staðfestingar umhverfisráðherra.
24.
Andapollurinn Reyðarfirði
Málsnúmer 0906059

Lagt fram erindi Hallfríðar Bjarnadóttur frá 10.6. Umhverfistjóri boðaður á næsta fund til að ræða umhverfi Andapollsins.