Bæjarráð
154. fundur
7. júlí 2009
kl.
09:00
-
11:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Þjónustusamningur um Norðfjarðarflugvöll
Ársæll Þorsteinsson frá Flugstoðum ohf. sat þennan lið fundarins. Farið var yfir stöðu sjúkraflugs um Norðfjarðarflugvöll. Ársæll lagði fram minnispunkta og í máli Ársæls kom fram að Flugstoðir vinni að lausn málsins, einnig sé að vænta endurbóta á flugvellinum og viðræður standa yfir við starfsmenn um að sinna þjónustu við völlinn.
2.
Bygginga- og lóðaframkvæmdir.
Lulu Munk Andersen byggingafulltrúi og Árni Steinar Jóhannsson umhverfisstjóri sátu þennan lið fundarins. Lagt fram minnisblað frá 1.7. yfir lóðamál í Fjarðabyggð þar sem farið er yfir lóðaframboð, lóðaskil, umhirðu lóða o.fl.
3.
Móttaka nýrra íbúa
Sigríður Herdís Pálsdóttir móttökufulltrúi nýrra íbúa sat þennan lið fundarins og lagði fram minnisblað frá 3.7. yfir nýja íbúa í Fjarðabyggð frá því í desember 2008.
4.
Gólf íþróttahúss á Eskifirði - lagfæringar
5.
Beiðni um styrk vegna heimsóknar íþróttafélags frá Færeyjum
Bréf Íþróttafélagsins Þróttar þar sem óskað er eftir stuðningi vegna heimsóknar um 60 manns frá íþróttafélagi Sandavogs. Bæjarráð felur forstöðumanni stjórnsýslu að afgreiða erindið í samráði við æskulýðs- og íþróttafulltrúa.
6.
Málefni Félagslundar Reyðarfirði
Rætt um málefni Félagslundar. Fram er komin beiðni frá undirbúningsfélagi Oddfellow um viðræður um afnot/leigu af Félagslundi og möguleg kaup á síðari stigum. Einnig er framlagt erindi Hrefnuberja og Jurta frá 5.júlí, þar sem óskað er eftir afnotum af hluta Félagslundar til eins árs. Erindum vísað til meðferðar bæjarstýru og mannvirkjastjóra.
7.
Afnotasamningur Vélaverkstæði Eyrargötu 7
Framlagður til kynningar afnotasamningur við Frú Lúlú til loka ágústmánaðar nk., vegna afnota af vélaverkstæði að Eyrargötu 7 í Neskaupstað.
8.
Samstarfsverkefni um þjónustu við fatlaða einstaklinga á Reyðarfirði
9.
Tilboð í endurnýjun hluta stofnlagnar vegna snjóflóðavarnargarðs.
Framlagt bréf Framkvæmdasýslu ríkisins frá 30.6. og minnisblað mannvirkjaviðs frá 2.7. er varðar töku tilboðs í endurnýjun hluta stofnlagnar vegna snjóflóðavarnargarðs. Bæjarráð samþykkir tillögu mannvirkjasviðs og Framkvæmdasýslu ríkisins um að tekið verði tilboði lægstbjóðanda RBG vélaleigu/Verktaka ehf.
10.
Staða framkvæmda vegna nýbyggingar leikskóla í Neskaupstað og lóðamála Sólvalla
Framlagt minnisblað mannvirkjasviðs frá 6.7. vegna stöðu framkvæmda vegna nýbyggingar leikskóla í Neskaupstað og lóðamála Sólvalla.
11.
Sala á fasteignum í eigu Fjarðabyggðar
Framlagt minnisblað mannvirkjasviðs vegna fyrirspurnar um sölu á íbúðarhúsi í Mjóafirði og beiðni menntamálaráðuneytisins um að skólastjórabústaðir á Fáskrúðsfirði, Eskifirði og í Neskaupstað verði settir í söluferli. Bæjarráð fellst á að skólastjórabústaðir verði settir í söluferli en hafnar tilboði í íbúðarhús í Mjóafirði.
12.
Svar við umsókn um úthlutun byggðakvóta
Bréf sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis frá 26.6. þar sem fram kemur að ráðuneytið hafi úthlutað 19 þorskígildistonnum til Fáskrúðsfjarðar og 158 til Stöðvarfjarðar. Tillögur sveitarstjórna vegna sérstakra skilyrða varðandi úthlutun byggðakvóta þurfa að hafa borist ráðuneytinu eigi síðar en 21.7. nk. Bæjarráð sammála um að gera ekki tillögu að sérreglum vegna úthlutunar.
13.
Sorpmál - Samstarf við Fljótsdalshérað
Umhverfisstjóri sat þennan lið fundarins. Framlögð umsögn umhverfisstjóra frá 28.6. vegna beiðni Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðar um urðun á almennu heimilissorpi, allt að 1000 tonn, í Þernunesi fram til næstu áramóta. Bæjarráð felur umhverfisstjóra að vinna málið áfram í samvinnu við hlutaðeigandi aðila.
14.
Endurskoðun hafnarreglugerðar Fjarðabyggðarhafna - síðari umræða
Bæjarráð samþykkir endurskoðun á hafnarreglugerð Fjarðabyggðarhafna.
15.
Fundagerð 84.stjórnarfundar HAUST
Fundargerð lögð fram til kynningar.
16.
Fundagerð 765.fundar Samband íslenskra sveitarfélaga
Fundargerð lögð fram til kynningar.
17.
Fundargerð 3.stjórnarfundar Náttúrustofu Austurlands
Fundargerð lögð fram til kynningar.
18.
Aðalfundur SSA 2009
Aðalfundur SSA verður haldinn 25. og 26.september á Seyðisfirði.
19.
Endurskoðun á samstarfi sveitarfélaga í SSA
Lagt fram svar við spurningum frá starfshópi SSA.
20.
Málefni Golfklúbbs Eskifjarðar
Rætt um málefni Golfklúbbs Eskifjarðar.
21.
Golfklúbbur Norðfjarðar - Framkvæmdir og vélakaup 2006-2008
Framlagðar upplýsingar samkvæmt ákvæði í samningi milli GN og Fjarðabyggðar.
22.
Minnispunktar um þróun íbúðamála í Fjarðabyggð
Framlagðir minnispunktar starfandi fjármálastjóra frá fundi sem haldinn var með íbúðalánasjóði 29.6.
23.
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr.31 frá 24.6.
Fundargerð samþykkt.
24.
Fundargerð hafnarstjórnar nr.60 frá 30.6.
Fundargerð samþykkt.