Fara í efni

Bæjarráð

158. fundur
18. ágúst 2009 kl. 09:00 - 11:00
í Molanum fundarherbergi 1 og 2
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
Dagskrá
1.
Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2009 - Hagræðingarleiðir
Málsnúmer 0903140
Þennan lið sátu fjármálastjóri, umhverfisstjóri og fræðslustjóri. Fjármálastjóri fór yfir hagræðingarmöguleika í einstökum málaflokkum auk þess sem umhverfisstjóri og fræðslustjóri fóru yfir sína málaflokka. Fjármálastjóra og umhverfisstjóra falið að útfæra fyrirkomulag og mögulega gjaldtöku vegna aksturs í VA og á sameiginlegar íþróttaæfingar.  Bæjarráð samþykkir framlagðar tillögur um 10% hækkun á gjaldskrá leikskóla, tónlistarskóla og skóladagheimila auk 10% hækkunar á gjaldi fyrir skólamáltíðir. Niðurgreiðsla annarrs barns á leikskóla verður 50% og þriðja barns 100% Gjaldskrár hafa ekki hækkað frá 1.1.2008 en vísitala neysluverðs hefur hækkað um 22,25% á sama tímabili. 
2.
Tekjur Fjarðabyggðar fyrstu sex mánuði árins 2009
Málsnúmer 0908029
Þennan lið sat fjármálastjóri. Lagt fram yfirlit yfir stöðu á tekjuliðum fyrstu sex mánuði ársins.
3.
Íslandsdagar í Gravelines
Málsnúmer 0908033
Framlögð samstarfsyfirlýsing Minjaverndar, Fjarðabyggðar, Gravelines og Alliance Francais um endurbyggingu Franska spítalans á upprunalegum slóðum á Fáskrúðsfirði. Bæjarráð samþykkir samstarfsyfirlýsinguna fyrir sitt leyti og felur bæjarstýru að fylgja henni eftir. 
4.
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 61 frá 12.8.
Málsnúmer 0908028
Bæjarráð samþykkir fundargerð hafnarstjórnar frá 12.8. og jafnframt að úthluta Vélaverkstæði Hjalta Einarssonar lóð nr. 10 við Hraun. Lóð nr.10 er úthlutað í stað lóðarinnar nr. 6, sem jafnframt er skilað, en lóðin reyndist ófullnægjandi að stærð.
5.
Sameiginlegur fundur Fjarðabyggðar og Alcoa Fjarðaáls
Málsnúmer 0908034
Framlögð dagskrá sameiginlegs fundar stjórnenda Alcoa Fjarðaáls og Fjarðabyggðar sem haldinn verður 25.8.
6.
Skólaþing sveitarfélaga
Málsnúmer 0908030
Skólaþing Sambands íslenskra sveitarfélaga verður haldið 2.11. í Reykjavík.
7.
Málþing um SSA og svæðasamvinnu sveitarfélaga
Málsnúmer 0908031
Haldið verður málþing 26.8. kl.15:00 - 19:00 á Hótel Héraði um samstarf sveitarfélaga í SSA og svæðasamvinnu stoðstofnana á Austurlandi.
8.
Málefni læknishússins á Fáskrúðsfirði
Málsnúmer 0908032
Tölvupóstur Líneikar Önnu Sævarsdóttur frá 7.8. er varðar ýmsan búnað í Ráðhúsinu á Fáskrúðsfirði. Bæjarráð felur mannvirkjasviði afgreiðslu málsins.
9.
Rafvæðing bílaflota landsmanna
Málsnúmer 0908035
Beiðni Northern Lights Energy ehf.,vegna verkefnisins "2012 Nýtt upphaf", um samstarf við Fjarðabyggð vegna rafvæðingar á bílaflota landsmanna.  Bæjarráð óskar umsagnar mannvirkjasviðs.
10.
740 Strandgata 43 - verðmat
Málsnúmer 0908020
Framlagt minnisblað mannvirkjastjóra frá 10.8. vegna fasteigna í Neskaupstað.  Bæjarstýru falið að fylgja málinu eftir.
11.
Fundur bæjarstýru í Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti
Málsnúmer 0908036
Bæjarstýra gerði grein fyrir fundi sínum með ráðuneytisstjóra sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis.
12.
Bréf frá Vága kommuna
Málsnúmer 0908043
Bréf Vága kommuna frá 1.8. er varðar vinabæjarsamskipti við Fjarðabyggð.
Guðmundur R. Gíslason spurðist fyrir um gróðurskemmdir ofan Blómsturvalla í tengslum við flutning vatnslagnar. Bæjarráð óskar eftir skýringum frá umhverfisstjóra.