Fara í efni

Bæjarráð

159. fundur
25. ágúst 2009 kl. 09:00 - 11:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Tillögur um skipulagðar samgöngur nemenda í VA og íþróttahópa skólaárið 2009-2010
Málsnúmer 0908047
Fjármálastjóri, umhverfisstjóri og fræðslustjóri sátu þennan lið fundarins. Framlagt minnisblað vegna fyrirkomulags á skipulögðum skólaakstri fyrir framhaldsskólanema á haustönn 2009 og yfirlit yfir kostnað vegna skipulagðra íþróttaferða og ferða í VA.  Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu um fyrirkomulag á skipulögðum skólaakstri í VA á haustönn 2009.  Bæjarráð felur fjármálastjóra, umhverfisstjóra og fræðslustjóra áframhaldandi útfærslu íþróttaferða í samráði við íþróttahreyfinguna. 
2.
Skýrsla um ferð til Eskilstuna
Málsnúmer 0908051
 Framlögð til kynningar skýrsla Guðmundar R. Gíslasonar.
3.
Beiðni um viðhaldviðgerðir og endurbætur í Sigfúsarhúsi
Málsnúmer 0908049
Bréf Félags eldri borgara á Norðfirði frá 17.8. þar sem óskað eftir endurbótum á Sigfúsarhúsi á árinu 2010.  Mannvirkjaviði falið að eiga fund með félaginu þar sem farið verði yfir óskir félagsins.
4.
Félagsheimilið Valhöll - ósk um viðræður um leigu
Málsnúmer 0908039
Kaffihúsið á Eskifirði óskar eftir viðræðum um rekstur Valhallar Eskifirði.  Forstöðumanni stjórnsýslu og ferða- og menningarfulltrúa falið að funda með fulltrúa kaffihússins og fara yfir hugmyndir hans.
5.
Beiðni um umsögn um frumvarp til laga um kosningar til sveitarstjórna
Málsnúmer 0908005
Framlagt bréf Alþingis frá 4.8. þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um kosningar til sveitarstjórna.
6.
Atvinnuleysi í júlí
Málsnúmer 0908053
Lagt fram til kynningar yfirlit yfir atvinnuleysi á Austurlandi og í Fjarðabyggð í júlí.
7.
Íbúaþróun á Austurlandi
Málsnúmer 0908054
Framlagðar upplýsingar um íbúaþróun á Austurlandi frá 2002.
8.
Tillaga að opnunartíma bókasafnsins á Fáskrúðsfirði
Málsnúmer 0908056
Tillaga forstöðumanns Safnastofnunar að breyttum opnunartíma. Bæjarráð staðfestir ákvörðun MÍF um breyttan opnunartíma bókasafnsins á Fáskrúðsfirði.
9.
Gjaldskrá fyrir hunda og kattahald
Málsnúmer 0908065
Framlögð tillaga umhverfisstjóra um breytingar á gjaldskrá fyrir hunda og kattahald. Bæjarráð samþykkir breytingar á gjaldskrá í samræmi við hækkun á vísitölu frá síðustu gjaldskrárhækkun.
Valdimar spyr hver staðan er á viðgerð á þakkanti Fjarðabyggðarhallarinnar og hvað líður frágangi á Edduborgarreit á Eskifirði.