Bæjarráð
162. fundur
15. september 2009
kl.
09:00
-
11:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Samningur vegna reiðskemmu
2.
Aðbúnaður barna og starfsmanna á leikskólanum Sólvöllum
Framlagt minnisblað mannvirkjastjóra og fræðslustjóra frá 14.9. vegna framkvæmda við leikskólann Sólvelli. Minnisblaðið er framlagt vegna misvísandi umfjöllunar um málið síðustu daga. Mannvirkjastjóri og fræðslustjóri sátu þennan lið fundarins og fóru yfir framkvæmdir síðustu daga. Einnig var rætt um biðlista og málefni dagforeldra í Neskaupstað.
3.
Fyrirspurn um bílastæði við sundlaug Norðfjarðar
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins og fór yfir aðgengismál við sundlaugina í Neskaupstað. Bæjarráð óskar eftir nánari útfærslu og kostnaðargreiningu frá mannvirkjasviði fyrir næsta fund.
4.
Notkun á félagsheimilinu Valhöll
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Framlagt minnisblað umsjónarmanns fasteigna frá 15.9. um mögulegan flutning félagsmiðstöðvarinnar Knellunnar á efri hæð gömlu bæjarskrifstofunnar að Strandgötu 49 Eskifirði. Bæjarráð sammála um að félagsmiðstöðin Knellan flytji í desember nk. Mannvirkjastjóra falið að segja upp leigusamningi vegna núverandi húsnæðis Knellunnar.
5.
Félagsheimilið Valhöll - ósk um leigu
Tekið fyrir á næsta fundi.
6.
Félagsheimilið Skrúður - ósk um leigu
Tekið fyrir á næsta fundi.
7.
Sorpmál - Samstarf við Fljótsdalshérað
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu umhverfisstjóra um að mannvirkjastjóri, umhverfisstjóri og fjármálastjóri sitji í samráðshóp um urðunarmál f.h. Fjarðabyggðar. Guðmundur R. Gíslason tók ekki þátt í afgreiðslu málsins.
8.
Tilnefning varamanns í MÍF.
Þorbergur Hauksson tekur sæti sem varamaður B-lista í MÍF.
9.
Vinabæjarsamskipti á norðurlöndum
Lagt fram bréf borgarstjóra Jyvaskylka er varðar vinabæjarsamskipti. Bæjarráð sammála um að halda vinabæjarsamskiptum áfram og bæjarstýru falið að svara bréfi.
10.
Aðalfundur SSA 2009
Framlögð dagskrá aðalfundar SSA sem haldinn verður 25. og 26.september á Seyðisfirði.
11.
Atvinnuleysi í ágúst
Upplýsingar lagðar fram til kynningar.
12.
Fundargerð öldrunarþjónustunefndar nr.13 frá 8.9.2009
Fundargerð lögð fram.
13.
Fundargerð mannvirkjanefndar nr.21 frá 7.9.2009
Fundargerð lögð fram.
14.
Fundargerð hafnarstjórnar nr.62 frá 8.9.2009
Fundargerð lögð fram.