Bæjarráð
163. fundur
22. september 2009
kl.
16:30
-
20:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2009 - Hagræðingarhugmyndir
2.
Ósk um niðurfellingu á húsaleigu í félagsheimilinu Skrúði vegna minningartónleika
Bæjarráð samþykkir að fella niður húsaleigu vegna fyrirhugaðra minningartónleika sem haldnir verða 3.október nk.
3.
Samningur vegna reiðskemmu
Bæjarráð samþykkir að greiða 10 milljóna framlag sitt til reiðskemmu á Norðfirði samkvæmt lið 6.1. í samningi frá 2007 og jafnframt að aðstoða við fjármögnun 10 milljóna króna til viðbótar samkvæmt nánara samkomulagi við Hestamannafélagið Blæ.
4.
Félagsheimilið Valhöll - leigusamningur
Bæjarráð samþykkir framlagðan samning, dagsettan 1.10.2009, við Tandraberg um leigu á félagsheimilinu Valhöll Eskifirði.
5.
Ársreikningur 2008
6.
Sala á fasteigninni að Breiðabliki 11 í Neskaupstað
Bæjarráð samþykkir sölu á Breiðabliki 11 í Neskaupstað samkvæmt tilboði er lagt var fram í mannvirkjanefnd 21.9.
7.
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 24 frá 14.9.
Fundargerð lögð fram.
8.
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr.33 frá 16.9.
Fundargerð lögð fram.