Fara í efni

Bæjarráð

164. fundur
29. september 2009 kl. 09:00 - 11:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Löggæslumál í Fjarðabyggð
Málsnúmer 0909145
Þennan lið fundarins sátu lögreglustjórinn á Eskifirði og yfirlögregluþjónn. Rætt um sparnaðarmarkmið ríkisins í löggæslumálum, hvað áhrif þau munu hafa á löggæslu í Fjarðabyggð og mikilvægi þess að breytingar í löggæslu verði kynntar íbúum.   
2.
Brunavarnaáætlun Slökkviliðs Fjarðabyggðar.
Málsnúmer 2008-10-02-1590
Slökkviliðsstjóri sat þennan lið fundarins og fór yfir meginbreytingar sem gerðar hafa verið á brunavarnaáætlunni frá því að farið var yfir fyrstu drög að áætluninni fyrr á árinu og hvaða áhrif breytingarnar hafa á tekjur og gjöld slökkviliðsins. Bæjarráð samþykkir með tveimur atkvæðum að vísa brunavarnaáætlun Slökkviliðs Fjarðabyggðar með framkomnum breytingum til Brunamálastofnunar. Þorbergur Hauksson tók ekki þátt í afgreiðslu þessa liðar.
3.
Hús áhugamálanna - Félagslundur
Málsnúmer 0909075
Beiðni RKÍ um afnot af Félagslundi undir starfsemi klúbba og tómstundastarfs fullorðinna. Frestað til næsta fundar.
4.
Notkun á félagsheimilinu Valhöll
Málsnúmer 2009-02-10-194
Rætt um húsnæðismál Knellunnar.  Unnið er áfram að flutningi Knellunnar í Valhöll.
5.
Ósk um leigu á félagsheimilinu Skrúði
Málsnúmer 0908092
Bréf Gests Valgeirs Gestssonar og Bjarna Rafns Ingvasonar frá 11.9.  Forstöðumanni stjórnsýslu falið að ræða nánar við bréfritara.
6.
Atvinnuuppbygging í Qeqqata
Málsnúmer 0909091
Fyrirspurn frá Qeqqata kommunia um samstarfsverkefni NORA vegna atvinnuuppbyggingar.  Óskað eftir umsögn frá forstöðumanni mannauðsmála.
7.
Beiðni um styrk til kaupa á listaverki eftir Tryggva Ólafsson
Málsnúmer 0909069
Bréf Magna Kristjánssonar frá 15.9. þar sem farið er fram á fjármagn til kaupa á listaverki af Akureyrarbæ eftir Tryggva Ólafsson sem prýtt hefur útvegg Egilsbúðar síðustu mánuði.  Vísað til MÍF.
8.
Ferðasjóður íþróttafélaga
Málsnúmer 0909079
Lögð fram til kynningar áskorun frá framkvæmdastjóra KSÍ til menntamálaráðherra um að framlög í ferðasjóð íþróttafélaga verði ekki skorin niður.  Bæjarráð tekur undir áskorun til ráðherra og vísar erindi til MÍF.
9.
Aðalfundur HAUST 2009
Málsnúmer 0909088
Aðalfundur verður haldinn 28.10.2009 kl.14:00 í Fljótsdalshreppi.
10.
Sparnaður í rekstri stoðstofnana og byggðasamlaga
Málsnúmer 0909132
Bæjarráð samþykkir framlagðar tillögur um lækkun framlaga til stoðstofnana og byggðasamlaga og felur fjármálastjóra framkvæmd.
11.
Samþykktir aðalfundar SSA 2009
Málsnúmer 0909130
Samþykktir frá aðalfundi SSA 2009 á Seyðisfirði lagðar fram til kynningar.
12.
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr.34 frá 23.9.
Málsnúmer 0909011F
Fundargerð lögð fram.
13.
Fundargerð mannvirkjanefndar nr.22 frá 22.9.
Málsnúmer 0909009F
Fundargerð lögð fram.
14.
Fundargerð fræðslunefndar nr.21 frá 23.9.
Málsnúmer 0909010F
Fundargerð lögð fram.
15.
Fundargerð menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar nr.27 frá 21.9.
Málsnúmer 0909008F
Fundargerð lögð fram.
Lögð fram samstarfsyfirlýsing um Franska Spítalann og vísað til skipulagsfulltrúa.