Fara í efni

Bæjarráð

166. fundur
13. október 2009 kl. 09:00 - 11:00
í Molanum fundarherbergi 1 og 2
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Uppsögn leigusamninga félagslegra íbúða
Málsnúmer 0909116
 Fram lagt og kynnt.
2.
Snjóflóðavarnir í Tröllagili í Norðfirði - framkvæmdum frestað
Málsnúmer 0910053

<?xml:namespace prefix = o />

Ályktun bæjarráðs Fjarðabyggðar vegna tilkynningar um frestun framkvæmda við snjóflóðavarnir í Tröllagili á Norðfirði:

Bæjarráð Fjarðabyggðar varar við þeirri ákvörðun um frestun framkvæmda við Tröllagil í Norðfirði sem tilkynnt er í bréfi umhverfisráðuneytisins dags. 7. október 2009.  Í tilkynningunni kemur fram að fyrri áætlanir um framkvæmdir við þver- og leiðigarð neðan Tröllagils á Norðfirði geti ekki gengið eftir og væntanlega hafi ofanflóðasjóður ekki fjármagn til verkefnisins fyrr en á árinu 2013.

Bæjarráð minnir á að þegar framkvæmdir hófust við snjóflóðavarnir í Drekagili á Norðfirði var ákveðið að varnargarðar ofan byggðar í Neskaupstað skyldu reistir í samfellu. Framkvæmdum við Drekagil lauk kringum aldamót og átti þá að hefja varnir við Tröllagil enda snjóflóðahætta á landinu ekki metin meiri annars staðar.  Þær framkvæmdir frestuðust m.a. vegna þenslu á svæðinu.  Sú röksemd á ekki við lengur.  Ofanflóðasjóður býr samkvæmt nýjasta ársreikningi yfir tæplega 6 milljörðum kr. í eigin fé og hefur það hækkað um rúmlega milljarð kr. milli ára..  Tekjur ofanflóðasjóðs eru árlegt gjald sem lagt er á allar brunatryggðar húseignir.  Fjármunir ofanflóðasjóðs eru því sérstaklega innheimtir til þess að vinna að vörnum gegn slysum af völdum snjóflóða en ekki almennur tekjustofn fyrir ríkissjóð.  Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2010 er gert ráð fyrir 592 milljónum kr. í framkvæmdir á vegum sjóðsins en fjármagnstekjurnar einar og sér voru 676 milljónir kr. árið 2008.  Í fjárlagafrumvarpinu er þar að auki gert ráð fyrir 1400 milljónum kr. í tekjur af ofanflóðagjaldi.

Það er bæjarráði Fjarðabyggðar óskiljanlegt að áform séu uppi um að fresta þessari framkvæmd sem nýverið var kynnt bæjaryfirvöldum og bæjarbúum - framkvæmd sem snertir stærstu öryggishagsmuni - framkvæmd sem fjármunir eru til fyrir - og framkvæmd sem mikil þörf er fyrir til vegna atvinnulífshagsmuna á staðnum.  Bæjarráð krefst þess því að ákvörðunin verði afturkölluð og horft til þess að sagan sýnir að í húfi eru ríkustu hagsmunir sem um getur.

Samþykkt samhljóða á fundi bæjarráðs 13. Október 2009

3.
Uppsögn á formennsku safnaráðs
Málsnúmer 0910043
Forstöðumaður safnastofnunar sat þennan dagskrárlið fundar og lagði fram umsögn.
Bæjaráð fellst á úrsögn Magna úr Safnaráði og þakkar vel unnin störf. 
Forstöðumanni safnastofnunar falið að vinna að málinu á grundvelli umsagnar í samráði við MÍF.
4.
Stefna í málefnum nýrra íbúa
Málsnúmer 0910052
Fram lagt og kynnt.
5.
Strandblakvellir fyrir ofan Starmýri
Málsnúmer 0909005
Bæjarráð óskar eftir greinargerð fyrir næsta fund.
6.
Hús áhugamálanna - Félagslundur
Málsnúmer 0909075
Lagðir fram minnispunktar um áform Oddfellows um afnot af Félagslundi.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu mannvirkjasviðs.
7.
Lausn á meðferð og úrvinnslu úrgangs
Málsnúmer 0910051
Lagt fram til kynningar.
8.
Ósk um viðræður um leigusamninga
Málsnúmer 0910038
Lagt fram til kynningar
9.
Greinargerð og tillögur starfshóps SSA 17.09.09 um framtíðarskipulag samstarfs sveitarfélaga í SSA
Málsnúmer 0909077
Lagt fram til kynningar.