Bæjarráð
Þennan lið fundarins sat fjármálastjóri. Framlagt minnisblað fjármálastjóra frá 20.10. Bæjarráð veitir fjármálastjóra heimild til að undirrita viðauka III við lánasamning nr. 301752-301755 frá 18.10.2000 í Íslandsbanka. Bæjarráð Fjarðabyggðar veitir bæjarstýru jafnframt heimild til þess að framlengja yfirdráttarheimild í Íslandsbanka, útibúi 569 á Reyðarfirði, að upphæð allt að 150 milljónir kr. til 1.júní 2010. <?xml:namespace prefix = o />
Bæjarráð Fjarðabyggðar beinir því til þingmanna Norðaustur kjördæmis að þeir beiti sér gegn samþykkt tillagna í fjárlagafrumvarpi um álagningu orku- og auðlindaskatts. Sveitarfélagið hefur á umliðnum árum verið í umbreytingar- og þróunarferli sem enn er í miðjum klíðum. Tæknilega fullkomnasta álver í veröldinni tók til starfa í Fjarðabyggð á árinu 2006 og þar er nú vinnustaður 450 starfsmanna og afleidd störf langdrægt jafnmörg. Auk nýjustu tækni hafa nýtt verklag og vönduð verkferli hjá Fjarðaáli vakið eftirtekt og margvíslegar opinberar viðurkenningar m.a. í öryggis- og vinnuverndarmálum, umhverfismálum og jafnréttismálum, hafa fallið fyrirtækinu í skaut. Í fjárfestingarsamningi fyrirtækisins er áskilnaður um að starfsemi þess stuðli að þróun vísinda- og tækniþekkingar á Íslandi. Bæjaryfirvöld leggja áherslu á að forsendur þróunar og nýsköpunar í sveitarfélaginu og annars staðar á landinu verði ekki rýrðar með sértækri skattheimtu eins og álagningu orku- og auðlindaskatts.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Fjárfestingar vegna uppbyggingar stóriðju á Austurlandi hlaupa á hundruðum milljarða króna ? hjá Landsvirkjun, Alcoa og ýmsum öðrum fyrirtækjum, íbúum og íslenska ríkinu. Sveitarfélagið er ekki undanskilið ? það hefur m.a. fjárfest í skólum, leikskólum, íþróttamannvirkjum, höfn og veitum til að geta þjónað nýjum fyrirtækjum og nýjum íbúum og nýtt tækifærin sem bjóðast á umbreytingatímum. Allar fjárfestingar sveitarfélagsins eru með langtímasjónarmið í huga og byggjast á því að forsendurnar sem lagt var upp með standist. Uppbyggingin nýtist öllum íbúum ? gömlum og nýjum ? og vaxandi þjónusta er til hagsbóta öllum fyrirtækjum og atvinnurekstri á svæðinu. Sértæk skattheimta, sem bitnar á starfsemi og áformaðri frekari uppbyggingu Fjarðaáls, mun óhjákvæmilega hafa neikvæð áhrif á stöðu annarra fyrirtækja í Fjarðabyggð og áætlanir þeirra um þjónustu og uppbyggingu í sveitarfélaginu. Ekki þarf að orðlengja um það hver áhrif samdráttur í atvinnulífinu mun hafa á hag íbúa í sveitarfélaginu
Bæjarráð minnir á að öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð er mikilvæg undirstaða þeirra útflutningstekna sem landsmenn allir þurfa á að halda til að komast út úr efnahagskreppunni. Ál er helsta útflutningsvara landsins og hlutfall þess í útflutningi vöru og þjónustu árið 2008 var tæp 28% en rúmlega 40% álútflutnings er úr Fjarðabyggð. Hlutfall sjávarútvegs í útflutningi vöru og þjónustu var rösk 26% á árinu 2008 og hlutur hinna sterku sjávarútvegsfyrirtækja í sveitarfélaginu vegur afar þungt í gjaldeyrisöflun þjóðarinnar. Miklar fjárfestingar sjávarútvegsfyrirtækja í Fjarðabyggð, einkum í uppsjávarvinnslu, hafa bara á þessu ári skilað þjóðarbúinu milljörðum króna í auknu aflaverðmæti síldar og makríls.
Álagning orku- og auðlindaskatts bitnar með sértækum hætti á útflutningsfyrirtækjunum sem eru undirstaða atvinnulífs í Fjarðabyggð og mun hafa alvarleg áhrif á atvinnustig. Stærsti vinnuveitandinn í Fjarðabyggð, Alcoa Fjarðaál, mun draga verulega úr umsvifum í sveitarfélaginu, flytja störf úr landi og hætta við fyrirhugaðar framkvæmdir. Óvissa í sjávarútvegi dregur úr atvinnuöryggi þar. Álagning orku- og auðlindaskatts mun því á endanum koma verst niður á hinum almenna íbúa í sveitarfélaginu, lækka ráðstöfunartekjur heimila og draga úr gjaldeyrisöflun þjóðarbúsins.
Um leið og bæjarráð hvetur alþingismenn og stjórnvöld til þess að standa vörð um heildarhagsmuni og grípa ekki til ráðstafana sem kippa stoðum undan framförum og nýsköpun til framtíðar er minnt á þá ábyrgð sem ríkisvaldið ber bæði gagnvart íbúum í sveitarfélaginu og fyrirtækjum sem hér hafa haslað sér völl. Allir þessir aðilar verða að geta treyst því að forsendum sé ekki breytt eftir á og grundvelli kippt undan miklum fjárfestingum.
Bæjarráð samþykkir samhljóma ofangreinda ályktun.