Bæjarráð
Bæjarráð Fjarðabyggðar lýsir furðu sinni á samþykkt bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs frá 4. þ.m. þar sem óskað er eftir viðræðum við samgönguyfirvöld um að Fljótsdalshérað taki að sér rekstur Vegagerðar ríkisins á Austurlandi. Vegagerðin hefur haft starfsstöð á Reyðarfirði í fjölda ára og þaðan er sinnt öllum rekstri vegakerfisins frá Ólafsfirði að Skeiðarársandi. Starfsmenn á Reyðarfirði eru um 20 en alls sinna rekstrinum um 60 manns í kjördæminu. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Seint verður næg áhersla lögð á að verkefnum á landsbyggðinni sé stjórnað þaðan í sem ríkustum mæli. Verði verkefnaflutningur í samgöngumálum milli ríkis og sveitarfélaga mun Fjarðabyggð leggja á það alla áherslu að verkefni Vegagerðarinnar á Austurlandi haldi áfram að vera á ábyrgð þeirra sérfræðinga sem staðið hafa vaktina með miklum sóma frá Reyðarfirði undanfarin ár og áratugi.