17. nóvember 2009
kl.
09:00
-
11:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Hjallaleira 12 - lóðaleigusamningur - Bréf Hringrásar
2.
Tillaga um breytingar á leyfum til dragnótaveiða í Eskifirði og Reyðarfirði
"Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja til að framkvæmdastjóra Fjarðabyggðahafna verði falið að ræða við Sjávarútvegsráðuneytið og / eða Fiskistofu um breytingar á leyfum til dragnótaveiða í Eskifirði og Reyðarfirði. Leggjum við til að Eskifjörður og Reyðarfjörður verði opnaðir fyrir dragnótaveiðum, báta allt að 12 brúttótonnum, frá og með 16.maí til 31.janúar samanber nærliggjandi firði.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Greinargerð:
Á Eskifirði eru dragnótaveiðar bannaðar allt árið innan línu sem dregin er milli Mjóeyrar og Skeleyrar.
Á Reyðarfirði eru dragnótaveiðar bannaðar allt árið innan línu, sem dregin er frá Ljós í Handarhald, sunnan fjarðarins.
Eftir sem áður yrðu Reyðarfjörður og Eskifjörður lokaðir dragnótaveiðum frá og með 1.febrúar til og með 15.maí innan línu sem dregin er réttvísandi norður frá Vattarnesvita en opnir utan þess tímabils.
Bæjarráð vísar tillögu til umfjöllunar í bæjarstjórn.
3.
Ósk um leigu á félagsheimilinu Skrúði
4.
Tilnefning fulltrúa sveitarfélagsins í starfshóp SSA og Sveitarstjórnarráðuneytisins
Fulltrúi Fjarðabyggðar í starfshópnum "Austurland eitt sveitarfélag" verður Smári Geirsson.
5.
Minnisblað um fjárlagafrumvarp 2010
6.
Fundagerð 87. stjórnarfundar HAUST
7.
Fundagerð 768. stjórnarfundar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
8.
Byggðakvóti í Fjarðabyggð
9.
Læknisþjónusta í Fjarðabyggð
<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Rætt um framlagða ályktun íbúafundarins þar sem samþykkt var að skora á bæjarstjórn Fjarðabyggðar að hefja nú þegar viðræður við heilbrigðisyfirvöld um að Fjarðabyggð taki við stjórn heilsugæslu í Fjarðabyggð (H.S.F) með samningum við viðkomandi yfirvöld.
10.
Aðalfundur fulltrúaráðs Héraðsskjalasafns Aust.2009
Bæjarráð felur bæjarstýru að skipa fulltrúa Fjarðabyggðar á aðalfund fulltrúaráðs Héraðsskjalasafns Austurlands fimmtudaginn 26.nóvember kl.15:00 í Végarði í Fljótsdal.
Rætt um málefni Franska spítalans og félagsmiðstöðvarinnar Knellunnar á Eskifirði. Bæjarráð óskar eftir minnisblaði frá æskulýðs- og íþróttafulltrúa og mannvirkjastjóra um hvort flutningur Knellunnar í Valhöll geti miðast við 25 ára afmæli félagsmiðstöðvarinnar 22.febrúar á næsta ári.