Bæjarráð
174. fundur
1. desember 2009
kl.
09:00
-
11:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Undirbúningur fjárhagsáætlunar fyrir Fjarðabyggð - 2010
Jóna Árný Þórðardóttir forstöðukona fjármála og Björgvin Valdimarsson sérfræðingur á fjármálasviði sátu þennan lið fundarsins og fóru yfir forsendur fjárhagsáætlunar og drög að úthlutun fjárhagsramma vegna ársins 2010. Fjárhagsrammar verða sendir stjórnendum síðar í dag og nefndarfundir verða haldnir í næstu viku. Skil til fjármálasviðs eru síðan seinni hluta næstu viku og því næst fær bæjarráð áætlanirnar aftur til umfjöllunar.
2.
Leiruvogur 2 - umsókn um breytingu á lóð
3.
Útboð - Sorp 2009
4.
Tillögur um skipulagðar samgöngur nemenda í VA og íþróttahópa skólaárið 2009-2010
5.
Styrkur til Salthússins
6.
Notkun á félagsheimilinu Valhöll
7.
Mótmæli starfsfólks vegna lokunar skrifstofu Fjarðabyggðar í Neskaupstað
8.
Þjónustugáttir í bókasöfnum - sameining bæjarskrifstofu
Framlagt minnisblað mannvirkjastjóra frá 30.nóvember vegna lokunar bæjarskrifstofu í Neskaupstað, um samanburð á möguleikum á starfsaðstöðu í Neskaupstað þegar upp koma sérstakar aðstæður. Í tengslum við ákvörðun bæjarráðs, um lokun bæjarskrifstofu í Neskaupstað sem tekin var á fundi bæjarráðs 12.nóvember, er ráðið sammála um að stefnt skuli að sameinuð bæjarskrifstofa á Reyðarfirði taki til starfa í desember samkvæmt fyrirliggjandi aðgerðaáætlun.
9.
Fundargerð félagsmálanefndar 23.11.2009
10.
Fundargerð fræðslunefndar nr.23
11.
Fundargerð menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar nr.29
12.
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr.37