Fara í efni

Bæjarráð

175. fundur
8. desember 2009 kl. 09:00 - 11:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Ósk um leigu á félagsheimilinu Skrúði
Málsnúmer 0908092
Framlögð drög að samningi við DMG vegna félagsheimilisins Skrúðs.  Forstöðumanni stjórnsýslu falið að vinna málið áfram.
2.
Styrkveitingar til greiðslu fasteignaskatts
Málsnúmer 0912018
Framlögð drög að reglum um styrkveitingar til greiðslu fasteignaskatts.  Tekið fyrir á næsta fundi.
3.
Umsókn Björgunarsveitarinnar Gerpis um styrk til greiðslu fasteignagjalda
Málsnúmer 0911154
Bréf Björgunarsveitarinnar Gerpis frá 27.nóvember þar sem óskað er eftir styrk til greiðslu fasteignagjalda vegna húsnæðis sveitarinnar. Samþykkt að boða forsvarsmenn björgunarsveitanna í Fjarðabyggð á næsta fund bæjarráðs.
4.
Umsókn um styrk vegna reksturs Björgunarsveitarinnar Gerpis á árinu 2009
Málsnúmer 0911155
Beiðni Björgunarsveitarinnar Gerpis frá 27.nóvember um kr. 1.000.000 styrk vegna reksturs sveitarinnar.  Vísað til MÍF.
5.
Umsókn um styrk vegna reksturs á leitarhundum Björgunarsveitarinnar Gerpis
Málsnúmer 0911153
Beiðni Björgunarsveitarinnar Gerpis frá 27.nóvember um kr. 450.000 styrk vegna reksturs leitarhunda sveitarinnar.  Vísað til MÍF.
6.
Beiðni um fund með bæjarráði
Málsnúmer 0912025
Beiðni Björgunarsveitarinnar Gerpis frá 3.desember um fund björgunarsveitanna í Fjarðabyggð með bæjarráði. Samþykkt að boða forsvarsmenn björgunarsveitanna á næsta fund.
7.
Fundur um sameiningu sveitarfélaga á Austurlandi 8.desember
Málsnúmer 0912034
Sameiginlegur kynningarfundur sem halda átti 8.desember kl.16:30 í fundarsal Þekkingarnets Austurlands á Egilsstöðum hefur verið frestað um óákveðinn tíma.
8.
Drög að byggðaáætlun 2010-2013
Málsnúmer 0912033
Framlagðar til kynningar athugasemdir Þróunarfélags, Þekkingarnets, Menningarráðs, Markaðsstofu, Vaxtarsamnings og Ferðamálasamtaka Austurlands og SSA.
9.
Tilfærsla á þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga
Málsnúmer 0912028
Lagt fram til kynningar bréf framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 30.nóvember þar sem fjallað er um undirbúning að myndun þjónustusvæða.
10.
Sorpmál - Samstarf við Fljótsdalshérað
Málsnúmer 0905099
Beiðni Fljótsdalshéraðs um framlengingu á heimild til urðunar á sorpi í Þernunesi.  Bæjarráð fellst ekki á framlengingu.
11.
Aðalfundur fulltrúaráðs Héraðsskjalasafns Austurlands 2009
Málsnúmer 0911095
Framlögð til kynningar fundargerð aðalfundar Héraðsskjalasafns Austurlands frá 26.nóvember 2009.
12.
Undirskriftalistar íbúa Norðfjarðar vegna mótmæla lokunar skrifstofu Norðfjarðar
Málsnúmer 0912041

Lagðir fram undirskriftalistar íbúa á Norðfirði auk svohljóðandi ályktunar frá íbúafundi sem haldinn var í Egilsbúð á Norðfirði þann 4.desember 2009. "Í störfum fólks er falinn styrkur samfélagsins og því getum við íbúar á Norðfirði ekki unað þeirri ákvörðun bæjaryfirvalda að loka skrifstofu sveitarfélagsins hér í bæ. Við krefjumst því þess að sú ákvörðun verði dregin til baka" Í ljósi ályktunar íbúafundarins vill bæjarráð árétta eftirfarandi vegna lokunar skrifstofunnar í Neskaupstað: Félagsþjónustusvið mun hafa fasta, skilgreinda viðtalstíma í heilsugæsluálmu HSA. Bæjarstýra hefur viðveru einn dag í viku í bókasafninu í Neskaupstað.  Mannvirkjastjóri og umhverfisstjóri eða fulltrúar þeirra verða með fasta viðveru vikulega í þjónustumiðstöð bæjarins í Neskaupstað.  Bókasafnið í Neskaupstað, líkt og bókasöfnin í öðrum þéttbýliskjörnum, verður þjónustugátt fyrir íbúa þar sem þeir geta nálgast eyðublöð og á opnunartíma verður tekið við umsóknum um þjónustu sveitarfélagsins.  Jafnframt verður þar aðgangur að tölvu og aðstoð um hvernig nálgast má upplýsingar um starfsemi sveitarfélagsins á heimasíðunni.  Unnið er að lausn til að tryggja að einstakir starfsmenn hafi aðgang að starfsaðstöðu í Neskaupstað vegna verkefna sem þar þarf að sinna. Þessi aðstaða verður tiltæk þar til opnað verður á umferð um ný göng milli Norðfjarðar og Eskifjarðar.  Símsvörun bæjarskrifstofu verður áfram í síma 470 9000.  Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins ítrekar afstöðu sjálfstæðismanna að útbúin verði starfsaðstaða í gamla bókasafninu í húsnæði Egilsbúðar fyrir það starfsfólk sem, af fjölskylduástæðum, á illmögulegt með að sækja vinnu að fullu til Reyðarfjarðar.

13.
Fundargerð 769. stjórnarfundar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Málsnúmer 0912012
Fundargerð 769.stjórnarfundar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
14.
Fundargerð félagsmálanefndar nr.27
Málsnúmer 0912011
Fundargerð lögð fram.
15.
Samkeppni um hönnun nýrrar Hulduhlíðar
Málsnúmer 0912043
Bæjarráð samþykkir að mannvirkjastjóri verði fulltrúi Fjarðabyggðar í dómnefnd vegna hönnunarsamkeppni um útlit nýrrar Hulduhlíðar.
16.
Baráttufundur um Norðfjarðargöng
Málsnúmer 0912044
Baráttufundur um Norðfjarðargöng verður haldinn mánudaginn 14.desember kl.20:00 - 22:00 í Kirkju- og menningarmiðstöðinni Eskifirði.
17.
Undirbúningur fjárhagsáætlunar fyrir Fjarðabyggð - 2010
Málsnúmer 0910092

Jóhann Eðvald Benediktsson mannvirkjastjóri, Jóna Árný Þórðardóttir forstöðukona fjármála og Björgvin Valdimarsson sérfræðingur á fjármálasviði sátu þennan lið fundarins. Mannvirkjastjóri fór yfir drög að fjárfestingaráætlun. Lögð fram tillaga að eyðublaði vegna gerð starfsáætlunar 2010. Fundað er í fagnefndum í þessari viku vegna fjárhagsáætlunarinnar. Bæjarráð samþykkir að fyrri umræða í bæjarstjórn um fjárhagsáætlun verði fimmtudaginn 17.desember. Meirihluti bæjarráðs Fjarðabyggðar samþykkir að álagningarhlutfall útsvars verði 13,28% af tekjum einstaklinga í Fjarðabyggð og fullnýta þannig útsvarsheimildir sveitarfélagsins.  Jens Garðar Helgason situr hjá.  Ljóst er að við núverandi aðstæður í rekstri sveitarfélagsins er óvarlegt annað en að fullnýta útsvarsheimildir þess. Þrátt fyrir að heimildin verði fullnýtt er ljóst að vinna þarf áfram í hagræðingar og sparnaðaraðgerðum í rekstri á næsta ári.