Bæjarráð
Þennan lið fundarins sátu fulltrúar björgunarsveitanna í Fjarðabyggð þeir Pálmi Benediktsson og Stefán Guðjónsson frá Björgunarsveitinni Gerpi, Eiður Ragnarsson og Steinar Ísfeld frá Björgunarsveitinni Ársól, Grétar Helgi Geirsson frá Björgunarsveitinni Geisla og Bjarni Guðmundsson frá Björgunarsveitinni Brimrúnu. Framlagt minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu frá 14.desember um yfirlit yfir styrki til björgunarsveitanna frá árinu 2007. Farið var yfir helstu verkefni og hlutverk björgunarsveitanna og hvert hlutverk bæjarins er gagnvart sveitunum. Rætt um samræmd samskipti milli björgunarsveitanna og Fjarðabyggðar og einnig drög að reglum um styrkveitingar til greiðslu fasteignaskatts.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />