Fara í efni

Bæjarráð

177. fundur
19. desember 2009 kl. 11:00 - 13:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Undirbúningur fjárhagsáætlunar fyrir Fjarðabyggð - 2010
Málsnúmer 0910092
Þennan lið fundarins sátu Jóna Árný Þórðardóttir forstöðukona fjármála, Björgvin Valdimarsson sérfræðingur á fjármálasviði og Jóhann Eðvald Benediktsson mannvirkjastjóri. Jóna gerði grein fyrir vinnu og breytingum sem gerðar hafa verið á áætlun frá síðasta fundi og fór yfir einstaka málaflokka. Gerðar voru lagfæringar á áætluninni. Gögn vegna seinni umræðu í bæjarstjórn verða send bæjarfulltrúum þann 20.desember.
2.
Gjaldskrá Hitaveitu Fjarðabyggðar
Málsnúmer 0912052
Minnisblað mannvirkjastjóra frá 14.desember um tillögu mannvirkjanefndar um hækkun um 7,9% á gjaldskrá Hitaveitu Fjarðabyggðar Eskifirði. Bæjarráð samþykkir með tveimur atkvæðum tillögu um hækkun á gjaldskrá Hitaveitu Fjarðabyggðar. Valdimar O. Hermannsson er á móti.  Gjaldskrárstefna verður rædd í bæjarráði milli umræðna í bæjarstjórn.
3.
Hækkun á sölugjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar
Málsnúmer 0912051
Framlagt minnisblað mannvirkjastjóra frá 14.desember og tillaga mannvirkjanefndar frá 10.desember um 3% hækkun á orkugjaldi í sölugjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar frá 1.janúar 2010. Bæjarráð samþykkir hækkun.
4.
Opnunartími leikskóla Fjarðabyggðar
Málsnúmer 0912046

Bæjarráð samþykkir tillögu fræðslunefndar um breyttan opnunartíma leikskóla frá 1.janúar 2010. Opnunartími leikskóla verður frá og með 1. janúar 2010 frá kl. 07:30 til 16:45 og börn geta dvalið í leikskólanum í fjórar til níu klukkustundir á dag.  Opnunartíminn frá kl. 7:30-7:45, 16:00-16:15, 16:15-16:30 og 16:30-16:45 er háður því að það séu a.m.k. 3 börn í vistun á viðkomandi tíma.  <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

5.
Fundargerð fræðslunefndar nr.25
Málsnúmer 0912011F
Fundargerð lögð fram.
6.
Fundargerð öldrunarþjónustunefndar nr. 16
Málsnúmer 0912012F
Fundargerð lögð fram.