Fara í efni

Bæjarráð

178. fundur
29. desember 2009 kl. 14:30 - 16:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Hækkun á dreifigjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar
Málsnúmer 0912071
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu mannvirkjanefndar um 6% hækkun dreifigjaldskrár Rafveitu Reyðarfjarðar.
2.
Gjaldskrárstefna fyrir veitur í Fjarðabyggð
Málsnúmer 0912094

Bæjarráð felur mannvirkjasviði að undirbúa gjaldskrárstefnu fyrir orkuveitur í Fjarðabyggð í samráði við fjármálasvið.  Markmiðið er:

1.      að sameinuð veitustofnun Fjarðabyggðar á mannvirkjasviði, Fjarðaveitur, fari með stjórn veitna í eigu bæjarins og samskipti við aðra framleiðendur og flutningsaðila orku.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

2.      að leita leiða til að verð til orkunotenda í Fjarðabyggð verði sambærilegt án tillits til þess af hverjum orka er keypt

3.      að stuðla að nýtingu jarðhita til orkuframleiðslu í þéttbýliskjörnum Fjarðabyggðar þar sem það er hagkvæmt.

 

Greinargerð:

Í Fjarðabyggð búa íbúar við mismunandi verðlagningu á orku eftir búsetu.  Rafveita Reyðarfjarðar hóf framleiðslu og orkusölu árið 1930, á Eskifirði var hitaveita tekin í notkun árið 2005 og á Norðfirði og Reyðarfirði rekur bærinn fjarvarmaveitu sem aðallega þjónar stofnunum Fjarðabyggðar.  Þó eru Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað og Verkmenntaskóli Austurlands einnig tengdir fjarvarmaveitu Fjarðabyggðar.  Annars staðar í Fjarðabyggð er raforka keypt af Rarik.  Mannvirki Rafveitu Reyðarfjarðar eru að mestu afskrifuð og skilar veitan hagkvæmu orkuverði til notenda.  Það tekur mið af innkaupaverði rafveitunnar  á orku frá Landsvirkjun og þeim tekjuramma sem Orkustofnun gefur út.  Gert er ráð fyrir að Rafveita Reyðarfjarðar skili 15 mkr. arði í bæjarsjóð samkvæmt fjárhagsáætlun 2010.  Hitaveita Fjarðabyggðar ber þungan fjármagnskostnað vegna fjárfestinga á Eskifirði og skuldar bæjarsjóði nú um 140 mkr. auk þess sem aðrar skuldir veitunnar eru um 525 mkr.  Áætlanir gera ráð fyrir að Hitaveita Fjarðabyggðar standi undir fjármagnskostnaði frá árinu 2015 miðað við núverandi gjaldskrá og að hún fylgi vísitölu.  Eftir það mun Hitaveita Fjarðabyggðar geta skilað arði.

3.
Ferjusiglingar Mjóifjörður
Málsnúmer 0912093
Framlagðar upplýsingar frá Vegagerðinni vegna breytinga á ferjusiglingum til Mjóafjarðar en fyrirhugað er að hætta siglingum milli Mjóafjarðar og Norðfjarðar yfir sumartímann frá og með sumri 2010. 

Bæjarráð leggur þunga áherslu á að Vegagerðin standi við samninga um ferjusiglingar til Mjóafjarðar.  Ferjuflutningar gegna mikilvægu hlutverki fyrir íbúa bæði til flutninga á fólki og vörum og að sumri eru þær mikilvægur hlekkur í ferðaþjónustu í Mjóafirði.  Í trausti þess að samningar haldi hafa viðsemjendur Vegagerðarinnar m.a. auglýst og kynnt sumarferðir 2010.  Skorað er á Vegagerðina að virða gerða samninga og standa vörð um ferjusiglingar til Mjóafjarðar.

4.
Starfsmannaþorp á Haga
Málsnúmer 2008-10-17-1659
Minnisblað mannvirkjastjóra frá 28.desember 2009 og skipulagsfulltrúa frá september 2008 vegna beiðni Alcoa Fjarðaáls um framlengingu á stöðuleyfi starfsmannaþorps á Haga út árið 2010. Bæjarráð samþykkir tillögu og fjárhæð lóðarleigu fyrir starfsmannaþorpið, eins og hún kemur fram í minnisblaði.