Bæjarráð
179. fundur
5. janúar 2010
kl.
09:15
-
11:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Styrkur til Salthússins
2.
Umsókn Björgunarsveitarinnar Gerpis um styrk til greiðslu fasteignagjalda
3.
Ósk um niðurfellingu á leigu Fjarðabyggðarhallar
4.
Umsókn Golfklúbbs Fjarðabyggðar um framkvæmdastyrk 2010
5.
Umsókn um styrk vegna reksturs á leitarhundum Björgunarsveitarinnar Gerpis
Bréf Björgunarsveitarinnar Gerpis frá 27.nóvember sem vísað var frá MÍF. Bæjarráð samþykkir að styrkja rekstur leitarhunda Björgunarsveitarinnar Gerpis um 300.000 á árinu 2009.
6.
Umsókn um styrk vegna reksturs Björgunarsveitarinnar Gerpis á árinu 2009
Forstöðumanni stjórnsýslu falið að fara yfir ónýttar fjárheimildir á árinu 2009 sem eru til ráðstöfunar til styrktar björgunarsveitanna í Fjarðabyggð. Tekið fyrir á næsta fundi.
7.
Fundargerð 4.stjórnarfundar NA 2009
8.
Þjónustusamningur um Norðfjarðarflugvöll
9.
Greinargerð Náttúrustofu Vesturlands um umhverfisvottun Íslands
Lagt fram og vísað til kynningar í umhverfis- og skipulagsnefnd.
10.
770. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 11.desember.
11.
Læknisþjónusta í Fjarðabyggð
Framlagt bréf heilbrigðisráðuneytisins til Heilbrigðisstofnunar Austurlands frá 21.desember vegna skýrslu sálfræðinganna Einars Gylfa Jónssonar og Þórkötlu Aðalsteinsdóttur um úttekt á starfsemi HSA í Fjarðabyggð og tillögur þeirra.
12.
Golfklúbbur Eskifjarðar - Golfklúbburinn Gríma
Minnisblað Regula lögmannsstofu frá 4.janúar er varðar málefni golfvallarins á Eskifirði. Bæjarráð samþykkir tillögu í minnisblaði Regula um riftun samnings við Golfklúbb Eskifjarðar.
13.
Tillögur um skipulagðar samgöngur nemenda í VA skólaárið 2009-2010
14.
Mannvirkjanefnd - 28
Fundargerð lögð fram.
15.
Menningar-, íþrótta- og ferðamálanefnd - 31
Fundargerð lögð fram.