Fara í efni

Bæjarráð

187. fundur
2. mars 2010 kl. 09:00 - 11:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Þriggja ára áætlun
Málsnúmer 1002050
Þennan lið fundarins sátu fjármálastjóri og mannvirkjastjóri. Farið var yfir tekjuforsendur þriggja ára áætlunar Fjarðabyggðar 2011-2013 og fjárfestingaráætlun. Bæjarráð samþykkir að vísa framkominni þriggja ára áætlun til fyrri umræðu í bæjarstjórn í vikunni.
2.
Starfsmannamál hafnanna
Málsnúmer 1002012
Minnisblað framkvæmdastjóra hafnanna frá 25.febrúar er varðar beiðni um ráðningu í starf vélstjóra en um er að ræða ráðningu í stað starfsmanns sem lét af störfum í febrúar. Bæjarráð heimilar ráðningu í starf vélstjóra við Fjarðabyggðarhafnir á grundvelli minnisblaðs.
3.
Sorphirða og Sorpförgun Fjarðabyggð - útboðsgögn
Málsnúmer 1001039
Mannvirkjastjóri og umhverfisfulltrúi sátu þennan lið fundarins. Framlagt minnisblað mannvirkjastjóra frá 1.mars um opnun tilboða í sorphirðu og sorpförgun í Fjarðabyggð og yfirlit yfir rekstur Sorpstöðvar Fjarðabyggðar í ljósi tilboðs lægstbjóðanda Íslenska Gámafélagsins. Bæjarráð samþykkir tillögu umhverfis- og skipulagsnefndar frá 24.febrúar og felur mannvirkjastjóra að ganga til samninga við Íslenska gámafélagið á grundvelli aðaltilboðs.  
4.
Deiliskipulag fyrir Skálateig í Neskaupstað
Málsnúmer 0909036
Bæjarráð samþykkir deiliskipulag fyrir Skálateig í Neskaupstað.
5.
Refa og minkaveiði 2010-2011
Málsnúmer 1002108
Umhverfisfulltrúi sat þennan lið fundarins. Umhverfisfulltrúi fór yfir framlagðar tillögur landbúnaðarnefndar um fyrirkomulag refa- og minkaveiða sem samþykktar voru í umhverfis- og skipulagsnefnd 24.febrúar. Viðbótarkostnaður á árinu 2010 vegna nýs fyrirkomulags er áætlaður að hámarki um 1 milljón. Bæjarráð felur umhverfissviði að fara yfir málið með landbúnaðarnefnd og vinna úr þeim fjárheimildum sem tiltækar eru.
6.
Beiðni til bæjarráðs vegna Egilsbúðar
Málsnúmer 1002136
Bréf Ölvers ehf. rekstraraðila Egilsbúðar frá 25.febrúar er varðar hitunarkostnað og leigu í Egilsbúð. Vísað til mannvirkjasviðs og tekið fyrir á næsta fundi.
7.
Ferjusiglingar Mjóifjörður
Málsnúmer 0912093
Framlagt minnisblað framkvæmdastjóra Fjarðabyggðarhafna frá fundi sem haldinn var 25.febrúar og bréf bæjarstýru til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra vegna fyrirhugaðra breytinga á siglingum til og frá Mjóafirði í sumar.  Bæjarráð leggst eindregið gegn því að sumarferðir ferjunnar verði lagðar niður.
8.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 40
Málsnúmer 1002010F
Fundargerð lögð fram.
9.
Fræðslunefnd - 27
Málsnúmer 1002007F
Fundargerð lögð fram.
10.
Mannvirkjanefnd - 30
Málsnúmer 1002008F
Fundargerð lögð fram.