Fara í efni

Bæjarráð

190. fundur
16. mars 2010 kl. 09:00 - 11:00
í Molanum fundarherbergi 3
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Beiðni til bæjarráðs vegna Egilsbúðar
Málsnúmer 1002136
Jón Hilmar Kárason fulltrúi rekstraraðila Egilsbúðar sat þennan lið fundarins. Jón fór yfir fyrirkomulag á rekstri hússins og rætt var um hitunarkostnað og leigufjárhæð.  Bæjarráð óskar eftir greinargerð frá rekstraraðila vegna fyrirkomulags rekstrar á árinu 2010 og eins er óskað eftir ársreikningi fyrir árið 2009.
2.
Málefni Heilbrigðiseftirlits Austurlands
Málsnúmer 1003017
Lagt fram minnisblað fjármálastjóra frá 16.mars vegna fjárhagsáætlunar HAUST á árinu 2010.  Í minnisblaði kemur fram að ekki er þörf fyrir endurskoðun á fjárhagsáætlun 2010 þó að framlög Fjarðabyggðar verði með sama hætti og annarra sveitarfélaga í byggðasamlaginu. Bæjarráð er því sammála að framlag Fjarðabyggðar til HAUST verði með sama hætti og annarra sveitarfélaga í samlaginu.
3.
Ársskýrsla HAUST 2009
Málsnúmer 1003065
Ársskýrsla lögð fram til kynningar.
4.
Málefni jarðarinnar Viðfjarðar, Fjarðabyggð
Málsnúmer 1003059
Bréf Jóns Jónssonar lögmanns frá 10.mars. Varðar öflun nokkurra einstaklinga á formlegum eignarrétti á jörðinni Viðfirði en viðkomandi hafa farið með öll eignaráð yfir jörðinni athugasemdalaust síðastliðin 70 ár.  Bæjarráð fellst á erindið og að ekki verði tekið til varna. Jafnframt að Fjarðabyggð áriti stefnu sbr. umfjöllun þar um í erindi lögmanns. Bæjarráð felur bæjarstýru afgreiðslu málsins og að árita stefnu.
5.
Samningur um útgáfu fréttabréfs
Málsnúmer 1003039
Samningur við Austurgluggann frá 8.mars lagður fram til kynningar.
6.
Samningur um golfvöll á Eskifirði
Málsnúmer 1003062
Samningur við Golfklúbbinn Byggðarholt frá 11.mars lagður fram til samþykktar. Bæjarráð samþykkir samning.
7.
Atvinnuuppbygging í Qeqqata
Málsnúmer 0909091
Þátttaka í samstarfsverkefni um breytingar samfélaga á norrænum slóðum og ákvörðun um þáttöku tveggja fulltrúa í ráðstefnu í byrjun júní 2010. Minnisblað mannauðsstjóra lagt fram.  Bæjarráð samþykkir að Gunnar Jónsson forstöðumaður mannauðsmála og Smári Geirsson bæjarfulltrúi verði fulltrúar á ráðstefnunni.  Allur kostnaður er greiddur af NORA.
8.
Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga 2010
Málsnúmer 1003057
Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga verður haldinn 26.mars kl.15:00 á Hilton Reykjavík Nordica hótelinu.  Bæjarstýra verður fulltrúi á aðalfundinum.
9.
Ósk um birtingu á lánastöðu sveitarfélagsins
Málsnúmer 1002015
Beiðni Lánasjóðs sveitarfélaga frá 24.janúar um heimild til birtingar á lánastöðu Fjarðabyggðar hjá sjóðnum. Bæjarráð heimilar Lánasjóði sveitarfélaga að miðla upplýsingum um lán Fjarðabyggðar.
10.
Fundagerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 772
Málsnúmer 1003066
Fundargerð lögð fram til kynningar.
11.
1. stjórnarfundur Náttúrustofu Austurlands á árinu 2010
Málsnúmer 1003064
Fundargerð lögð fram til kynningar.
12.
Fundir yfirkjörstjórnar Fjarðabyggðar 1., 3. og 5.mars
Málsnúmer 1003063
Fundargerðir lagðar fram.
13.
Aukaaðalfundur SSA 19.apríl 2010
Málsnúmer 1003068
Efni fundarins eru tillögur stýrihóps SSA um starfsemi SSA og stoðstofnana. 
14.
Greiðslur til sveitarfélaga vegna kosninga 2010
Málsnúmer 1003069
Lagt fram til kynningar bréf dóms- og mannréttindaráðuneytis frá 12.mars er varðar greiðslur til sveitarfélaga vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar 6.mars og sveitarstjórnarkosninga 29.maí nk.
15.
Fyrirspurn vegna færslu Nesgötu í Neskaupstað
Málsnúmer 1003060
Fyrirspurn skólastjóra Nesskóla lögð fram til kynningar og vísað til umhverfissviðs.
16.
Fullnaðarafgreiðsla erinda - Staðfesting fundargerða án umræðu
Málsnúmer 1003027
Framlagt bréf Skipulagsstofnunar frá 1.mars er varðar tvo nýgengna úrskurði um skipulagsmál þar sem fram kemur að  skipulagsmál til samþykktar verði að vera sérstakur dagskrárliður á fundi bæjarstjórnar.
17.
Tilnefnding í stýrihóp sjálfbærniverkefnis
Málsnúmer 1003071
Bæjarráð sammála að umhverfisstjóri verði fulltrúi í stýrihóp sjálfbærniverkefnis Alcoa og Landsvirkjunar.
18.
Söngvakeppni fyrir börn og unglinga
Málsnúmer 1003077
Rætt um Röddina söngvakeppni fyrir börn og unglinga.
19.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 41
Málsnúmer 1003006F
Fundargerð lögð fram.
20.
Hafnarstjórn - 68
Málsnúmer 1003004F
Fundargerð lögð fram.
Guðmundur Þorgrímsson óskar eftir rökstuðningi frá slökkviliðsstjóra vegna nýlegra ráðninga í störf hjá Slökkviliði Fjarðabyggðar. Framlagt bréf sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis frá 15.mars er varðar athugasemdir við tillögu Fjarðabyggðar frá 22.febrúar um sérreglur um úthlutun byggðakvóta f